Kórstarfið

Aðalfundur KKH 2026

Aðalfundur Karlakórs Hreppamanna árið 2026 verður haldinn í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum þriðjudaginn 20. október kl. 21:00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf, skv. lögum félagsins: 4. grein4.1. Aðalfund skal halda árlega eigi síðar en 15. nóvember ár hvert. Til...

Nýtt starfsár – stórafmælisár

Eftir góða upphitun sl. þriðjudag, við opnun vindorkugarðs við Vaðöldu, hefst starfsárið 2026-2027 formlega á morgun, 22. september, með hefðbundinni þriðjudagskvöldsæfingu kl. 20:00 í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum. Starfsárið 2026-2027 verður umsvifamikið og...

Góður félagi kveður

Kær vinur og söngbróðir góður í Karlakór Hreppamanna, Böðvar Ingi Ingimundarson, er látinn. Böðvar var einn af grunnstólpunum í kórnum um langa hríð, leiddi 1. bassa um tónstigann af lagvissu öryggi með sinni mildu rödd, hvort sem sungnir voru óperukórar úti í...

Undirbúningur afmælisárs gengur vel

Aðalfundur kórsins, sem haldinn var 21. október síðastliðinn, samþykkti að skipa afmælisnefnd til að undirbúa 30 ára afmælið vorið 2027. Í afmælisnefndinni sitja allir formenn kórsins frá upphafi. Stjórn KKH fundaði í gær, 21. apríl, með afmælisnefndinni, þar sem...

Vortónleikar 2026

Kórinn lauk söngárinu á þrennum tónleikum nú í apríl. Þeir fyrstu voru haldnir við ágæta aðsókn í Guðríðarkirkju í Reykjavík þriðjudaginn 14. apríl, en þar hefur kórinn sungið mörg undanfarin ár. Næstir í röðinni voru tónleikar í Selfosskirkju föstudagskvöldið 17....

Nýir „merkisberar“

Laugardagskvöldið 18. apríl, að loknum síðustu vortónleikum kórsins söngárið 2025-2026, var að venju efnt til samfagnaðar kórfélaga og maka þeirra. Að þessu sinni í Hestakránni að Húsatóftum á Skeiðum, þar sem móttökurnar voru höfðinglegar. Við það tækifæri afhenti...
Tónleikaröð og söngskrá 2026

Nú er tónleikavertíðin hafin. Hver kórinn á fætur öðrum auglýsir vortónleika sína og söngmenn halda glaðir og spenntir inn í vorið. Karlakór Hreppamanna hóf sinn söng sl. þriðjudagskvöld í Guðríðarkirkju, við ágæta mætingu og rífandi undirtektir. Næstu tónleikar eru...

read more
„ … kveikir sindur og sálaryl … “

Laugardagskvöldið 14. febrúar 2026 stóð Karlakór Hreppamanna fyrir hagyrðingakvöldi í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum. Magnús Halldórsson á Hvolsvelli stjórnaði samkomunni og kallaði til eftirtalda hagyrðinga: Atla Guðlaugsson á Tindum á Kjalarnesi, Dagbjart...

read more
Hagyrðingakvöld 14. febrúar ’26

Ætlarðu‘ á hagyrð-inga kvöld?Þú ekki verður svikin/n.Ansi hógvær aðgangsgjöld.Öll þau fara mikinn. Karlakórinn stendur fyrir hagyrðingakvöldi laugardagskvöldið 14. feberúar í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum. Aðgangseyrir er aðeins kr. 3.000,-. Skemmtunin hefst kl....

read more
Jólakveðja

Karlakór Hreppmanna sendir velunnurum, sveitungum og landsmönnum öllum bestu kveðjur með óskum um gleðileg jól og farsælt nýtt ár. Árið hefur verið kórnum viðburðaríkt, gjöfult og skemmtilegt. Kórinn er vaxandi á ný, félögum fjölgar smátt og smátt aftur, aðsókn hefur...

read more
Jólahlaðborð

Skemmtinefnd kórsins efndi til jólahlaðborðs á hótelinu á Flúðum föstudagskvöldið 5. desember. Tíðindamaður heimasíðunnar var á staðnum með símtækið og smellti af nokkrum myndum.

read more
Fréttir af aðalfundi

Í gærkvöld, 21. október 2025, var haldinn aðalfundur kórsins, við ágæta mætingu kórfélaga. Létt var yfir mönnum og fundurinn fór vel fram, undir traustri stjórn Alla á Hrafnkelsstöðum. Helstu tíðindi eru þau að Loftur S. Magnússon var endurkjörinn formaður með...

read more
Contact

(255) 352-6258

1234 Divi St. #1000, San Francisco, CA 94220

Hours
Closed Mondays
Tuesday through Friday
Open 8am – 12pm
Copyright © 2026 Divi. All Rights Reserved.