Aðalfundur Karlakórs Hreppamanna árið 2026 verður haldinn í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum þriðjudaginn 20. október kl. 21:00.
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf, skv. lögum félagsins:
4. grein
4.1. Aðalfund skal halda árlega eigi síðar en 15. nóvember ár hvert. Til aðalfundar skal boða með 7 daga fyrirvara. Aðalfundur telst löglegur ef löglega er til hans boðað.
4.2. Á aðalfundi og öðrum fundum félagsins ræður einfaldur meirihluti atkvæða, nema öðruvísi sé ákveðið í lögum þessum sbr. gr. 7.
4.3. Á aðalfundi skulu a.m.k. eftirtalin mál tekin fyrir:
a) Lögð fram skrifleg skýrsla formanns um störf kórsins frá síðasta aðalfundi.
b) Lagðir fram til samþykktar skoðaðir reikningar félagsins/kórsins fyrir síðastliðið rekstrarár.
c) Lagabreytingar.
d) Ákvörðun æfingagjalda.
e) Kosning formanns.
f) Staðfesting á tilnefningum raddanna á fjórum aðal- og fjórum varastjórnarmönnum.
g) Kosning 2 félagslegra skoðunarmanna
h) Önnur mál.
-Stjórnin.