Nú er tónleikavertíðin hafin. Hver kórinn á fætur öðrum auglýsir vortónleika sína og söngmenn halda glaðir og spenntir inn í vorið. Karlakór Hreppamanna hóf sinn söng sl. þriðjudagskvöld í Guðríðarkirkju, við ágæta mætingu og rífandi undirtektir. Næstu tónleikar eru annað kvöld, föstudag 17. apríl kl. 20 í Selfosskirkju, og þeir þriðju og síðustu laugardagskvöldið 18. apríl í SKálholtsdómkirkju, einnig kl. 20.

Meðfylgjandi er hér söngskráin, fyrir áhugasama, sem geta e.t.v. kynnt sér efnið fyrirfram og undirbúið sig fyrir „meðsöng“: