
Kórinn lauk söngárinu á þrennum tónleikum nú í apríl. Þeir fyrstu voru haldnir við ágæta aðsókn í Guðríðarkirkju í Reykjavík þriðjudaginn 14. apríl, en þar hefur kórinn sungið mörg undanfarin ár.

Næstir í röðinni voru tónleikar í Selfosskirkju föstudagskvöldið 17. apríl. Heldur var mætingin dræm á Selfossi að þessu sinni, hverju sem um var að kenna, en þar hefur kórinn oft sungið í gegn um tíðina fyrir nánast fullu húsi.



Lokatónleikarnir voru í Skálholtskirkju laugardagskvöldið 18. apríl, og þó brugðið hafi verið af þeirri áralöngu venju að þessu sinni, að ljúka vortónleikaröðinni í Félagsheimilinu á Flúðum, þá var húsfyllir og rífandi stemmning í Skálholti. Myndir úr Skálholtskirkju gætu bæst hér við, ef „vel viðrar“.
Þátttakendur í tónleikunum með kórnum voru undirleikarinn Sigurður Helgi, Bjarni Atlason, einsöngvari og Magnús Stefánsson, gítar, fiðlu og mandólínleikari. Þá komu nokkrir kórfélagar fram, þeir Karl Hallgrímsson, sem lék á bassa og mandólín, feðgarnir Hjalti Gunnarsson og Bjarni Arnar Hjaltason sem sungu dúett í einu lagi og Bjarni Arnar söng einnig dúett með mági sínum, Hjálmi Hjálmssyni. Atli Guðlaugsson stjórnaði að vanda, og lék á tropet í nokkrum lögum.
Kórinn þakkar tónleikagestum kærlega fyrir komuna, sem og öllum sem aðstoðuðu við ýmis störf sem til falla svo vel fari. Bestu þakkir.