Kær vinur og söngbróðir góður í Karlakór Hreppamanna, Böðvar Ingi Ingimundarson, er látinn.

Böðvar var einn af grunnstólpunum í kórnum um langa hríð, leiddi 1. bassa um tónstigann af lagvissu öryggi með sinni mildu rödd, hvort sem sungnir voru óperukórar úti í Rómarborg, rammíslensk, kraftmikil karlakóralög, sönglög erlendra stórskálda, létt dægurlög eða rómantískar stemmningar úti í íslenskri náttúru.

Böðvar Ingi var ekki maður sem otaði sér í sviðsljósið, var hægur, traustur og umhyggjusamur, og kíminn í besta skilningi með sinn glaðværa húmor.

Böðvar hafði dregið sig í hlé frá kórnum fyrir nokkrum árum og nú hefur hann dregið sig í hlé frá þessu jarðlífi, og er sárt saknað. Karlakór Hreppamanna þakkar honum gefandi samveru og sendir eftirlifandi eiginkonu hans, börnum, barnabörnum og fjölskyldunni allri innilegar samúðarkveðjur.

Blessuð sé minning Böðvars Inga Ingimundarsonar.

Böðvar Ingi með Dóru konu sinni og Friðgeiri bróður sínum á 20 ára afmælishátíð KKH árið 2017.