Laugardagskvöldið 18. apríl, að loknum síðustu vortónleikum kórsins söngárið 2025-2026, var að venju efnt til samfagnaðar kórfélaga og maka þeirra. Að þessu sinni í Hestakránni að Húsatóftum á Skeiðum, þar sem móttökurnar voru höfðinglegar.

Við það tækifæri afhenti siðanefnd kórsins, skipuð þeim Gunnlaugi Magnússyni og Páli Jóhannssyni, heiðursmerki þeim sem unnið höfðu fyrir þeim skv. reglum kórsins.

Silfurmerki KKH, fyrir 15 ára þátttöku, fékk Hjálmur Hjálmsson á Flúðum.

Gullmerki KKH, fyrir 20 ára samfellda þáttöku, fengu Laugdælingarnir Friðgeir Stefánsson í Laugardalshólum og Gylfi Þorkelsson á Laugarvatni, og einnig Steingrímur Jónsson á Flúðum, sem gat því miður ekki verið viðstaddur og er því ekki á meðfylgjandi mynd af nýju merkisberunum.