Kórstarfið

Karlakvöldið 2026

Hið árlega, víðfræga Karlakvöld KKH verður haldið í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum föstudagskvöldið 13. nóvember nk. Húsið opnar kl. 19:30 og borðhald hefst um kl. 20:00. Aðgangseyrir er hóflegur að vanda, sama verð og í fyrra, og menn verða til þjónustu reiðubúnir...

Af aðalfundi KKH 2026

Aðalfundur Karlakórs Hreppamanna var haldinn þriðjudaginn 20. október sl. í Félagsheimili Hrunamanna. Mættir voru 36 félagar. Í skýrslu formanns var starfsemi liðins árs rakin í stórum dráttum. Það var viðburðaríkt og skemmtilegt. Árlegir, hefðbundnir viðburðir eru...

Aðalfundur KKH 2026

Aðalfundur Karlakórs Hreppamanna árið 2026 verður haldinn í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum þriðjudaginn 20. október kl. 21:00. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf, skv. lögum félagsins: 4. grein4.1. Aðalfund skal halda árlega eigi síðar en 15. nóvember ár hvert. Til...

Nýtt starfsár – stórafmælisár

Eftir góða upphitun sl. þriðjudag, við opnun vindorkugarðs við Vaðöldu, hefst starfsárið 2026-2027 formlega á morgun, 22. september, með hefðbundinni þriðjudagskvöldsæfingu kl. 20:00 í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum. Starfsárið 2026-2027 verður umsvifamikið og...

Góður félagi kveður

Kær vinur og söngbróðir góður í Karlakór Hreppamanna, Böðvar Ingi Ingimundarson, er látinn. Böðvar var einn af grunnstólpunum í kórnum um langa hríð, leiddi 1. bassa um tónstigann af lagvissu öryggi með sinni mildu rödd, hvort sem sungnir voru óperukórar úti í...

Undirbúningur afmælisárs gengur vel

Aðalfundur kórsins, sem haldinn var 21. október síðastliðinn, samþykkti að skipa afmælisnefnd til að undirbúa 30 ára afmælið vorið 2027. Í afmælisnefndinni sitja allir formenn kórsins frá upphafi. Stjórn KKH fundaði í gær, 21. apríl, með afmælisnefndinni, þar sem...
Söngskemmtun
Söngskemmtun

Þrír kórar halda tónleika í félagsheimilinu á Flúðum laugardaginn 20. febrúar kl. 20:30. Sjá nánar auglýsingu hér að neðan. Aðgangseyrir kr. 2.000,-. Allir hjartanlega velkomnir.

read more
Söngskemmtun á Flúðum

Laugardaginn 20. febrúar mun Karlakór Hreppamanna halda söngskemmtun á Flúðum. Gestir kvöldsins verða karlakór eldri Fóstbræðra og Kvennakórinn Freyjurnar úr Borgarfirði. Nánar auglýst síðar.

read more
Jólaæfing

Síðasta æfing fyrir jól verður þriðjudaginn 15. desember. Takið eiginkonurnar með og eigum saman notalega kvöldstund. Létt jólastemmning, jólalög, jólaglögg og piparkökur. Jólakveðja, Stjórnin  

read more
Karlakvöld

Hið árlega Karlakvöld Karlakórs Hreppamanna verður haldið í félagsheimilinu á Flúðum föstudagskvöldið 13. nóvember 2009. Dagskráin verður með nokkuð hefðbundnu sniði. Þátttaka tilkynnist til kórfélaga fyrir þriðjudaginn 10. nóvember. Húsið opnar kl. 20:00....

read more
Fyrsta söngæfing vetrarins

Fyrsta söngæfing karlakórsins verður þriðjudaginn 15. september kl. 20:30 í Félagsheimilinu á Flúðum. Nú er upplagt fyrir þá sem ekki eru nú þegar í kórnum en tóku lagið í réttunum að kíkja á fyrstu æfinguna.

read more
Contact

(255) 352-6258

1234 Divi St. #1000, San Francisco, CA 94220

Hours
Closed Mondays
Tuesday through Friday
Open 8am – 12pm
Copyright © 2026 Divi. All Rights Reserved.