Kórstarfið
Hátíð í bæ
Jólatónleikarnir "Hátíð í bæ" fara fram í Iðu, íþróttahúsi FSu á Selfossi, miðvikudagskvöldið 8. desember og hefjast kl. 20:00. Karlakór Suðurlands (Karlakór Hreppamanna, Karlakór Rangæinga og Karlakór Selfoss) ásamt fjölda góðra tónlistarmanna munu koma fram á...
Gorhátíð
Karlakvöld 2010 Þann 19. nóvember heldur annar tenór hið árlega karlakvöld Karlakórs Hreppamanna í Félagsheimilinu Flúðum. Borðhald hefst kl. 20:30 húsið opnar kl. 19:30. Aðgangseyrir kr. 3.500
Kötlukórinn á veraldarvefnum
Á YouTube má finna lagið Ár vas alda sem tekið var upp á Kötlumótinu, stjórnandi Árni Harðarson. Þetta er íslenskt þjóðlag í útsetningu Þórarins Jónssonar.Hér má sjá myndbandið.
Góðar kveðjur
Karlakórnum hefur borist margar góðar og skemmtilegar kveðjur eftir Kötlumótið sem við þökkum hér með kærlega fyrir. Hér eru nokkrar kveðjur í bundnu máli sem okkur langar að deila með ykkur. Karlakórinn Stefnir:Stefnisliðið ljómar enn,lét þar vaða á...
Að loknu Kötlumóti
Hið magnaða stef úr Völuspá „vasa sandur né sær" hljómar enn í kolli okkar Hreppamanna og efalaust í hjá fleirum er komu að hlusta á Kötlukórinn mikla í Límtréshöllinni á laugardaginn var. Sexhundruð manna karlakór sem ekkert dró af sér hlýtur að vera þeim er...
Kötlumót 2010
Laugardaginn 16. október verður haldið söngmót sunnlenskra karlakóra á Flúðum. Í ár er Kötlumótið í umsjá Karlakórs Hreppamanna en Katla er Samband sunnlenskra karlakóra. Á mótinu koma saman 15 íslenskir karlakórar, víðsvegar af landinu ásamt einum kór frá Finnlandi....

