by admin | okt 18, 2010 | Fréttir á forsíðu
Hið magnaða stef úr Völuspá „vasa sandur né sær“ hljómar enn í kolli okkar Hreppamanna og efalaust í hjá fleirum er komu að hlusta á Kötlukórinn mikla í Límtréshöllinni á laugardaginn var. Sexhundruð manna karlakór sem ekkert dró af sér hlýtur að vera...
by admin | okt 4, 2010 | Fréttir á forsíðu
Laugardaginn 16. október verður haldið söngmót sunnlenskra karlakóra á Flúðum. Í ár er Kötlumótið í umsjá Karlakórs Hreppamanna en Katla er Samband sunnlenskra karlakóra. Á mótinu koma saman 15 íslenskir karlakórar, víðsvegar af landinu ásamt einum kór frá Finnlandi....
by admin | sep 28, 2010 | Fréttir á forsíðu, Reiðtúrar
Þeir fóru á mis við frábæra skemmtun í fallegu veðri sem komust ekki í reiðtúr karlakórsins þann 17. september s.l. Hópurinn sem lagði af stað í sól og blíðu frá Syðra-Langholti var … Nánar
by admin | sep 2, 2010 | Fréttir á forsíðu
Formaður Skógræktarfélags Íslands fór þess á leit við formann kórsins á vormánuðum að við myndum syngja á Þingvöllum í tilefni 80. ára afmælis félagsins þann 29. ágúst. Það var auðsótt mál ef næðist í nægilega marga söngmenn þar sem formlegar æfingar væru ekki...
by admin | maí 11, 2010 | Fréttir á forsíðu
Við viljum koma á framfæri kæru þakklæti til Skagfirðinga fyrir höfðinglegar móttökur. Sérstakar þakkir fær Karlakórinn Heimir fyrir að bjóða okkur að taka þátt í Sæluvikutónleikunum í Miðgarði. Hér má lesa ferðasöguna.
by admin | apr 27, 2010 | Fréttir á forsíðu
Vortónleikar Karlakórsins tókust í alla staði vel. Sungið var í Selfosskirkju þriðjudagskvöldið 13. apríl fyrir fullu húsi og síðan á Flúðum laugardagskvöldið 17. apríl. Þar fylltu tónleikagestir félagsheimili okkar Hreppamanna og ekki var annað að heyra en að gestir...