Það er ánægjulegt, og hreint ekki lítils virði, hve margir, fyrirtæki, sveitarfélög og einstaklingar, eru kórnum vinsamlegir og tilbúnir að styðja við starfið. Lýsandi dæmi um það er söngskráin okkar, sem alltaf gengur vel að gefa út af þeirri ástæðu að margir eru hreinlega áskrifendur að auglýsingaplássi, ár eftir ár. Ekki hefur ritstjórn heimasíðunnar gert á því vísindalega rannsókn en ætli nokkur annar kór gefi út sambærilegt rit? Söngskráin er ekki einvörðungu einn mikilvægsti grunnurinn undir fjárhag kórsins heldur ómetanleg heimild um kórinn. Takk fyrir túkall!!

Karlakór Hreppamanna sendir öllum velunnurum kórsins bestu þakkir fyrir stuðninginn, og sérstakar kveðjur til þeirra sem sýnt hafa áralanga tryggð. Án slíkrar velvildar væri enginn kór. Takk fyrir.