Eftir lokatónleikana var að venju boðið í teiti. Skemmtinefndin hafði undirbúið glæsilegt hlaðborð með mat og drykk, þakkir til þeirra allra. Auðvitað var töluvert sungið, eins og vera ber, spjallað og spaugað. Virkilega skemmtileg kveðjustund fyrir sumarið.
Næst á dagskrá er svo árlegi reiðtúrinn góði, Siggi Bjögg bauð öllum viðstöddum í áttræðisafmæli í sumar, æfingar og tónleikar verða í Skálholti í lok júlí, áður en lagt verður upp til Vesturheims 29. júlí, og vísast verða fundin önnur formleg og óformleg tilefni til nærandi samveru.
Í lokateitinu bar það einnig til tíðinda að Orðunefnd skilaði af sér umfangsmiklu starfi sem hún hefur sinnt síðustu misserin; að finna út hverjir væru „komnir á aldur“ fyrir silfur- og gullmerki kórsins. Þeir Gunnlaugur Magnússon í Miðfelli og Páll Jóhannsson í Núpstúni höfðu veg og vanda af þessu og eiga miklar þakkir skildar fyrir að koma orðuveitingunum í góðan farveg.
Silfurmerki Karlakórs Hreppamanna, eftir a.m.k. 15 ára starf í kórnum hlutu að þessu sinni 11 félagar:

Á mynd frá vinstri í efri röð: Bjarni Hjörleifsson, Gísli Gunnar Guðmundsson, Sigurður Ingi Jóhannsson, Sigurður Bjarnason, Loftur S. Magnússon, Gylfi Þorkelsson og Friðgeir Stefánsson. Neðri röð f.v.: Helgi Már Gunnarsson, Sigurjón Sigurðsson, Steingrímur Jónsson og Bjarni Hjaltason.
Gullmerki kórsins, eftir 20 ára þrautseigju, hlutu 5 heiðursfélagar og eðaldrengir:

Frá vinstri: Sigmundur Jóhannesson, Grímur Guðmundsson, Sigurður Björgvinsson, Þorkell Þorkelsson og Loftur S. Magnússon
Þá má geta þess í lokin að Egill Jónasson, raddformaður, veitti félögum sínum í 2. tenór viðurkenningar fyrir veturinn, með nákvæmum prósentuútreikningum á mætingunni. Þetta er til fyrirmyndar hjá Agli, og mega aðrir raddformenn taka hann sér til fyrirmyndar.