Miðvikudagskvöldið 16. apríl sl. héldu KKH og Sprettskórinn síðustu sameiginlegu vortónleikana sína í Félagsheimilinu á Flúðum. Eins og fyrr reyndust þetta vel sóttir, og vel heppnaðir tónleikar. Atli Guðlaugsson hélt vel um alla þræði, Sigurður Helgi lék eins og engill á flygilinn að vanda og Bjarni Atlason söng einsöng með sinni styrku og hljómfögru bassarödd.

Á efnisskránni voru mest þekkt kórlög, íslensk ættjarðar- og hátíðalög eftir nokkra af okkar fremstu tónsmiðum og þjóðskáldum. Lagavalið mótaðist af því að kórarnir stefna, eins og fram hefur komið hér á síðunni, vestur um haf síðsumars, á 150 ára afmælishátíð landnáms Íslendinga í Gimli og munu syngja þar á hátíðarhöldum bæði í Bandaríkjum Norður-Ameríku, í Mountain í Norður-Dakota, og í Gimli, Kanadamegin við landamærin.

Meðfylgjandi eru nokkrar myndir sem teknar voru við þetta tækifæri.

Aldursforsetinn, Friðgeir Stefánsson í Laugardalshólum, í sínu fínasta pússi í fremstu röð.

Feðgarnir Hjalti Gunnarsson á Kjóastöðum og Bjarni Hjaltason í Borgarási. Báðir fyrrverandi formenn kórsins.

Stjórnandinn, Atli Guðlaugsson, og undirleikarinn, Sigurður Helgi, ráða ráðum sínum

Fyrsti tenór þenur sig. Siggi Bjögg passar upp á undirtónana.

Frændur á spjalli. Gísli Gunnar Guðmundsson frá Torfastöðum og Sigurður Björgvinsson í Skarði.

Bjarni kóngur, Eiríkur Ágústsson, Palli í Núpstúni, Gestur frá Húsatóftum og Úlfhéðinn í Haga

Agnar uppfræðir Sprettarana um lífsins gagn og nauðsynjar.

Sigurður Bjarnason, Friðgeir í Hólum og Palli Svans. slaka á með félögum úr Sprettskórnum eftir upphitun.

Einar þjóðgarðsvörður, Brynjar í Heiði, Elli Bjarna, Sigurjón í Kotlaugum og Hjálmur Hjálmsson eru allir sultuslakir að sjá, þó annað kunni vissulega að hrærast innra með þeim.

Steingrímur er með Sigurð Inga og Badda í vasanum.

Hér eru tveir úr yngri- og miðdeild: Sigurður Snær og Bjarni á Fossi tilbúnir á ball, fjallmyndarlegir alveg hreint!

Helgi Gunnarsson veit hvað hann syngur. En er Gussi eitthvað hikandi?

Sprettarar kampakátir og tilbúnir að spretta úr söngspori.

Konunum leiðist ekki, alveg titrandi af spenningi bíða þær tónleikanna, og barinn opinn. Anna María á Laugarvatni, Eygerður á Eyrarbakka og Svanhildur frá Sandlæk.

Tekið úr öftustu röð yfir áheyrendaskarann. Beðið eftir stjórnanda og undirleikara.