Ætlarðu‘ á hagyrð-inga kvöld?
Þú ekki verður svikin/n.
Ansi hógvær aðgangsgjöld.
Öll þau fara mikinn.

Karlakórinn stendur fyrir hagyrðingakvöldi laugardagskvöldið 14. feberúar í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum. Aðgangseyrir er aðeins kr. 3.000,-.

Skemmtunin hefst kl. 20:00 en húsið opnar kl. 19:00 og verður hægt að afla sér kætikosts á barnum í félagsheimilinu áður en fjörið brestur á, í hléi og e.t.v. oftar.

Skemmtun þessi er að öðlast hefðarrétt í dagskrá kórsins, hefur verið haldin nokkur undanfarin ár við góðan orðstír, enda hafa sótt okkur heim nokkrir af bestu og þekktustu hagyrðingum landsins, bæði norðan heiða og austan læks (Þjórsár).

Að þessu sinni eru til kallaðir landsfrægir hagyrðingar og vísnagrúskarar af vestari helmingi landsins: úr Húnaþingi, Borgarfirði og af Kjalarnesi, auk eins amlóða úr uppsveitum Árnesþings. Þeir eru, í stafrófsröð:

Atli Guðlaugsson á Tindum á Kjalarnesi, kórstjóri Hreppamanna, tónskáld, tónlistarkennari og skólastjóri. Syngur gjarnan yfir látnum, og stundum lifandi. Hefur líka verið réttarstjóri og tamningamaður.

Dagbjartur Dagbjartsson, kenndur við Refsstaði í Hálsasveit, fyrrum bóndi, tamningamaður. Fjárleitamaður í fremstu röð, einn mesti núlifandi vísnagrúskari og heimildaritari.

 Gylfi Þorkelsson frá Laugarvatni, kennari, hesta- og leiðsögumaður, körfuboltastjarna fyrrum, félagi í Hreppakórnum og töluvert mikið tengdur Litla-Hrauni, einkum þó að talið er við leiðsögn fanga.

Þórdís Sigurbjörnsdóttir frá Hrísum í Flókadal, fyrrum sauðfjárbóndi, hagyrðingur, sinnir Dagbjarti og er að auki golfvallasérfræðingur.

Þórður Pálsson frá Sauðanesi á Ásum, sérfræðingur í riðu og fyrrum ráðunautur, slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður. Félagi í Karlakór Bólstaðarhlíðarhrepps og syngur nokkuð yfir látnum. Hefur oft verið gangamaður á afrétti Enghlíðinga og í gamla daga á Auðkúluheiði. Hefur gaman af ótömdum hrossum, því hann temur þau ekki. 

Stórnandi verður Magnús Halldórsson, Vestfirðingur að ætt og uppeldi, en hefur verið búsettur nærri hálfa öld á Suðurlandi. Vinnumaður, tamningamaður, járnsmiður, vélstjóri, sundvörður ofl. Er, að eigin sögn, talinn sá maður íslenskur sem oftast hefur tekið bílpróf, án þess þó að hafa nokkru sinni fallið á slíku prófi.

Uppsveitafólk er sérstaklega hvatt til að láta sér þessa skemmtun ekki úr greipum ganga. Aðir eru meira en velkomnir líka.