
Að venju var Karlakvöld Karlakórs Hreppamanna haldið í Félagsheimilinu á Flúðum. Að þessu sinni föstudaginn 13. nóvember. Einhverjum hefði þótt það glapræði að stefna svo mörgum köllum saman á 13. degi mánaðar, og föstudegi í þokkabót, slíkt viti ekki á gott. En það voru bassarnir í kórnum sem héldu utan um samkomuna að þessu sinni og þar er samankominn kjarkaður hópur sem lætur slíkar kerlingabækur lönd og leið. Enda var samkoman með eindæmum vel heppnuð í alla staði. Aðsóknin var óvenju góð þó ekki séu endanlegar tölur komnar í hús. Óhætt er að fullyrða að um 250 karlar hafi verið samankomnir í húsinu þetta kvöld. Stemningin var frábær og tilhlökkun í loftinu.
Karl Hallgrímsson setti samkomuna og kynnti veislustjóra kvöldsins, Bjarna töframann. Bjarni reyndist hinn besti veislustjóri, spilaði á gítar og söng og sagði brandara og sögur. Kórinn söng svo nokkur lög að venju og hófst svo átveisla mikil.
Það er ótrúlegt hvað gestirnir ná að hesthúsa af þessu feita og bragðmikla hrossakjöti en kjötmagnið hefur vart farið undir 500 gr. á mann síðan mælingar hófust og er þá ekki talið með magnið af kartöflum, rófum, gulrótum, grænum baunum, rauðkáli og jafningi.

Að átinu loknu fór Bjarni með gamanmál og söng, og myndskeið var sýnt sem bassarnir höfðu útbúið. Þar sátu nokkrir félagar og ræddu málin og veltu fyrir sér hvað væri til ráða til að fá yngri menn til að ganga í kórinn. Var að lokum leitað ráða hjá þeim yngsta, sem reyndar er vart af fermingaraldri. Hann lagði til að við myndum rappa nokkur lög. Þessu ráði var svo fylgt og bassarnir komu fram sem rappkór og rappaði lag sem Karl Hallgrímsson, 1. bassi, samdi og Gylfi Þorkelsson og Karl sömdu texta við. Textinn fjallaði að sjálfsögðu um ágæti kórsins. Óhætt er að segja að þetta skemmtiatriði hafi hlotið frábærar viðtökur og verður vart hjá því komist að rappa ávallt hluta af hverju söngprógrammi hér eftir.

Að lokum fluttu bassarnir lagið Heppnir menn sem er texti Gylfa við lagið „Hraustir menn“ og þrátt fyrir tæknilega örðugleika var lagið flutt tvisvar og tóku gestirnir hressilega undir.
Ekki var annað að sjá en að allir hafi horfið á braut glaðir í bragði og ákveðnir í að koma aftur að ári.
-ÞJ
Myndir: Einar Á. E. Sæmundsen