Hið árlega, víðfræga Karlakvöld KKH verður haldið í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum föstudagskvöldið 13. nóvember nk.

Húsið opnar kl. 19:30 og borðhald hefst um kl. 20:00. Aðgangseyrir er hóflegur að vanda, sama verð og í fyrra, og menn verða til þjónustu reiðubúnir á öllum hefðbundnum póstum; í miðasölu við innganginn, á barnum, í eldhúsinu, við framburð veitinga og sorpsöfnun, kórsöng, í skemmtiatriðum, fjöldasöng, jafnt í samkomusal, anddyri og á salernum og auðvitað við gleði og almenn skemmtilegheit.

Veistlustjóri og aðalnúmer á samkomunni er hinn bráðsmellni Bjarni töframaður, en ásamt honum munu samkomuhaldarar, bassarnir í kórnum, töfra fram rándýrar uppákomur.

Nú er tíminn til að bregðast við og tryggja sér sæti við veisluborðið með því að skrá sig hjá einhverjum kórfélaganum úr bassaröddunum, því áður en varir gæti orðið uppselt.