Aðalfundur Karlakórs Hreppamanna var haldinn þriðjudaginn 20. október sl. í Félagsheimili Hrunamanna. Mættir voru 36 félagar.
Í skýrslu formanns var starfsemi liðins árs rakin í stórum dráttum. Það var viðburðaríkt og skemmtilegt. Árlegir, hefðbundnir viðburðir eru Karlakvöld í byrjun nóvember, aðventugleði í desember, æfingadagar eftir þörfum síðvetrar, hagyrðingakvöld nokkur undanfarin ár, vortónleikaröð í apríl og reiðtúr að sumri. Þetta tókst allt með ágætum.
Auk hefðbundinna viðburða má geta boðs á vígslutónleika nýs flygils í Skálholtskirkju, sem kórinn tók einmitt þátt í að safna fyrir með tónleikum í kirkjunni, glæsilegs lokahófs skemmtinefndar í Hestakránni á Húsatóftum, söngs á afmælishátíð Hrunamannahrepps og við vígslu vindorkuvers Landsvirkjunar í Vaðöldu.
Í máli formanns kom skýrt fram hve kórinn byggir á traustum grunni, margir stofnfélagar eru enn mikilvirkir í starfi kórsins og allir félagar sem leitað er til taka verkefni sín traustum tökum og sinna þeim af alúð og dugnaði. Þetta er ómetanlegt í erilsömu sjálfboðastarfi, og ekki síður að áhugamannakór hafi á sínum snærum slíkt úrval fagmanna til að leiða starfið: „Þar nefni ég helst þolinmóðan stjórnandann, Atla Guðlaugsson, svo og einsöngvarann Bjarna Atla, sem hefur lyft kórnum á hærra plan. Síðast en ekki síst nefni ég Sigurð Helga, sem við vitum að er algjör snillingur og happafengur fyrir okkur“.
Þá ræddi formaður um komandi söngár, með hápunkti í 30 ára afmælishátíð kórsins 3. apríl 2027, tónleika í Íþróttahúsinu á Flúðum og hátíðarsamkomu i Félagsheimili Hrunamanna.
Að lokum kom fram að eftir hvatningu og umhugsun hefði formaður ákveðið að „hætta við að hætta“ og gefa kost á sér til að leiða starfið fram yfir afmælishátíðina næsta vor.
Gjaldkeri kynnti næst reikninga og fjárhagsáætlun. Niðurstaðan er jákvæð, rekstrarafgangur um 2,5 milljónir, skuldir engar, eigið fé tæpar 8,9 m. og dágóð upphæð í sjóði, sem nýtast mun vel í metnaðarfulla dagskrá á afmælisári.
Loftur S. Magnússon var endurkjörinn formaður með lófaklappi og meðstjórn öll og varastjórn sömuleiðis óbreytt frá liðnu ári: Páll Kristján Svansson, Egill Jónasson, Sigurður Snær Sveinsson og Gylfi Þorkelsson, en Helgi Ingimarsson, Bjarni Hjörleifsson, Erlingur Bjarnason og Hjalti Gunnarsson til vara.
Stjórn kynnti jafnframt niðurstöðu sína um skipan í nefndir næsta söngár, sem nálgast má annars staðar hér á heimasíðunni, sjá hér: https://kkh.is/stjorn-og-nefndir/