Eftir góða upphitun sl. þriðjudag, við opnun vindorkugarðs við Vaðöldu, hefst starfsárið 2026-2027 formlega á morgun, 22. september, með hefðbundinni þriðjudagskvöldsæfingu kl. 20:00 í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum.
Starfsárið 2026-2027 verður umsvifamikið og spennandi, enda stórafmæli framundan, kórinn verður þrítugur þann 1. apríl 2027. Stórafmælistónleikar hafa þegar verið dagsettir laugardaginn 3. apríl ´27 í íþróttahúsinu á Flúðum, með þátttöku Karlakórs Kópavogs, en stjórnandi hans er einmitt hinn frábæri undirleikari okkar, Sigurður Helgi. Stjórnandi Karlakórs Hreppamanna er, eins og undanfarin ár, Atli Guðlaugsson.
Hefðbundnir dagskrárliðir verða auðvitað á sínum stað: karlakvöld 13. nóvember, aðventugleði 12. desember, „æfingadagar“ í febrúar og mars, og vortónleikar í apríl. Auk afmælistónleikanna á Flúðum verður sungið með K.Kóp í Digraneskirkju og afmælishaldinu slúttað á Akureyri með tónleikum í Glerárkirkju, með þátttöku Karlakórs Eyjafjarðar.
Auk þessa hefur verið ákveðin þátttaka í tónleikum Brokkkórsins á Flúðum í október, og fleira kann að verða dregið upp úr hattinum þegar líður á haustið, t.d. hagyrðingakvöld, heimsóknir og samsöngur með öðrum kórum og e.t.v. fleira þó ekkert slíkt sé enn ákveðið eða fast í hendi. Sjáum til.
Alla vega er ljóst að þetta verður glimrandi ár, og kórinn leggur allan sinn metnað í að afmælisárið verði bæði sómasamlegt og skemmtilegt, bæði fyrir kórfélaga og áheyrendur.
Eins og ævinlega eru nýir söngmenn boðnir hjartanlega velkomnir og „gamlir“ hvattir til að dusta rykið af nótnamöppunum og pússa spariskóna, og tryggja að kórinn verði stór og öflugur og láti reyna á þakfestingarnar í íþróttahúsinu þann 3. apríl.
Hvað sem öðru líður er félagsskapurinn bæði skemmtilegur og gefandi og vel þess virði að verja einu kvöldi í viku með Karlakór Hreppamanna.
Æfingar eru haldnar í Félagsheimili Hrunamanna að Flúðum alla þriðjudaga kl. 20:00.