Aðalfundur kórsins, sem haldinn var 21. október síðastliðinn, samþykkti að skipa afmælisnefnd til að undirbúa 30 ára afmælið vorið 2027. Í afmælisnefndinni sitja allir formenn kórsins frá upphafi. Stjórn KKH fundaði í gær, 21. apríl, með afmælisnefndinni, þar sem farið var yfir starf nefndarinnar hingað til.

Skemmst er að segja frá því að nefndinni hefur unnist verk sitt með ágætum og undirbúningur er kominn vel á veg.

Fyrst er til að taka að afmælistónleikar verða haldnir í íþróttahúsinu á Flúðum 3. apríl 2027 og afmælisveisla í Félagsheimili Hrunamanna að þeim loknum. Kórfélögum hefur verið sendur listi með öllum lögum sem kórinn hefur sungið, alls 215 lög, og þeir beðnir um að velja af þeim lista til flutnings þau 5 lög sem þeim hugnast best. Nefndin mun síðan vinna úr þessari skoðanakönnun tillögu að söngskrá.

Rætt hefur verið við Edit Molnár, stofnanda korsins og stjórnanda fyrstu 20 árin, um að taka þátt í afmælinu með því m.a. að stjórna kórnum í nokkrum lögum – og vonir standa til að af því geti orðið þannig að dagsetningar falli að dagskrá hennar og fyrirætlunum, þó það liggi ekki fyrir á þessari stundu.

Þá hefur verið neglt niður að Karlakór Kópavogs taki þátt í afmælistónleikunum og stefnt er að því að syngja einnig með Kópavogsmönnum á höfuðborgarsvæðinu, þó dagsetning og nánari útfærsla sé í skoðun.

Ákveðin hefur verið vorferð til Akureyrar, með lokatónleikum í Glerárkirkju 24. apríl, í samstarfi við Karlakór Eyjafjarðar.

Það er því ljóst að framundan eru spennandi tímar í sögu kórsins og metnaðarfull dagskrá á afmælisári.

Á næstunni verður svo fyrrverandi kórfélögum sent boð, og hvatning um að koma aftur til liðs við kórinn og taka þátt í að gera afmælisárið enn skemmtilegra og eftirminnilegra. Á 20 ára afmælinu voru um 60 félagar í kórnum og ekki væri leiðinlegt að nálgast þá tölu aftur á þrítugsafmælinu.

Ýmislegt fleira er til umræðu sem ekki er tímabært að nefna að svo stöddu, en stjórn og afmælisnefnd eru samhljóma um að setja markið hátt og „taka afmælisárið með trompi“.

Sunnlendingar geta alla vega strax tekið 3. apríl 2027 frá því von er á eftirminnilegum tónleikum þann dag í íþróttahúsinu á Flúðum.