# Karlakór Hreppamanna ## Posts - [Jólakveðja](https://kkh.is/2025/12/23/jolakvedja/): Karlakór Hreppmanna sendir velunnurum, sveitungum og landsmönnum öllum bestu kveðjur með óskum um gleðileg jól og farsælt nýtt ár. Árið hefur verið kórnum viðburðaríkt, gjöfult og skemmtilegt. Kórinn er vaxandi á ný, félögum fjölgar smátt og smátt aftur, aðsókn hefur verið góð á tónleika og aðra viðburði og samstarf við Sprettskórinn, sem náði hátindi í söng og skemmtiferð á Íslendingaslóðir í Bandaríkjunum og Kanada og þátttöku í hátíðarhöldum vegna 150 ára afmælis landnáms Íslendinga þar vestra, farsælt. Þakkir færir kórinn Spretturum fyrir samstarfið og vináttu. Einnig ber að þakka sérstaklega því fólki þar vestra sem bar hitann og þungann af […] - [Jólahlaðborð](https://kkh.is/2025/12/06/jolahladbord/): Skemmtinefnd kórsins efndi til jólahlaðborðs á hótelinu á Flúðum föstudagskvöldið 5. desember. Tíðindamaður heimasíðunnar var á staðnum með símtækið og smellti af nokkrum myndum. - [Fréttir af aðalfundi](https://kkh.is/2025/10/22/frettir-af-adalfundi/): Í gærkvöld, 21. október 2025, var haldinn aðalfundur kórsins, við ágæta mætingu kórfélaga. Létt var yfir mönnum og fundurinn fór vel fram, undir traustri stjórn Alla á Hrafnkelsstöðum. Helstu tíðindi eru þau að Loftur S. Magnússon var endurkjörinn formaður með lófataki, og Bjarni Arnar Hjaltason og Úlfhéðinn Sigurmundsson gengu nú úr stjórn, eftir áralanga setu. Úlfhéðinn hefur verið ritari stjórnar, eiginlega lengur en elstu menn muna (þeim er þó farið að förlast minnið), og Bjarni lýkur nú ferli sínum sem formaður og varaformaður helftina af síðasta áratug. Í stað þeirra koma inn í stórn, báðir úr varastjórn, þeir Egill Jónasson […] - [Samningur undirritaður](https://kkh.is/2025/10/15/samningur-undirritadur/): Hrunamannahreppur og Karlakór Hreppamanna hafa gert með sér samning til næstu tveggja ára til að formfesta áralangt, munnlegt samkomulag milli aðila um stuðning sveitarfélagsins við kórstarfið, til „að efla menningarstarf í Hrunamannahreppi“ eins og segir í 1. grein samningsins. Meginefni samningsins er að hreppurinn leggi til gjaldfrjáls afnot af félagsheimilinu til æfinga og tónleikahalds og styrki útgáfu söngskrár en kórinn komi á móti fram á viðburðum sem sveitarfélagið stendur fyrir, og haldi tónleika heimafyrir. Sveitarstjóri Hrunamannahrepps, Aldís Hafsteinsdóttir, mætti á stjórnarfund hjá KKH í gær, 14.10.2025, og undirritaði samninginn ásamt Lofti S. Magnússyni, formanni kórsins. - [Auglýsing um aðalfund Karlakórs Hreppamanna 2025](https://kkh.is/2025/10/13/auglysing-um-adalfund-karlakors-hreppamanna-2025/): Aðalfundur Karlakórs Hreppamanna 2025 verður haldinn þriðjudaginn 21. október 2025 kl. 21:00 í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum.  Dagskrá aðalfundar skal vera eftirfarandi, skv. 4. grein félagslaga kórsins: 4. grein 4.1. Aðalfund skal halda árlega eigi síðar en 15. nóvember ár hvert. Til aðalfundar skal boða með 7 daga fyrirvara. Aðalfundur telst löglegur ef löglega er til hans boðað. 4.2. Á aðalfundi og öðrum fundum félagsins ræður einfaldur meirihluti atkvæða, nema öðruvísi sé ákveðið í lögum þessum sbr. gr. 7. 4.3. Á aðalfundi skulu a.m.k. eftirtalin mál tekin fyrir: a) Lögð fram skrifleg skýrsla formanns um störf kórsins frá síðasta aðalfundi. b) Lagðir fram […] - [Kóramót í Kópavogi](https://kkh.is/2025/09/29/koramot-i-kopavogi/): Nýtt starfsár hefst með látum, kórinn varla búinn að taka upp úr töskunum eftir ferðalagið mikla til USA og Kanada, þegar fyrsta verkefnið er innan seilingar. Um næstu helgi, laugardaginn 4. október, heldur Karlakór Kópavogs söngskemmtun í Lindakirkju og býður til þátttöku þremur öðrum kórum, jafnvel fjórum, eftir því hvernig talið er. Gestakórarnir eru Karlakór Eyjafjarðar, Karlakór Akureyrar/Geysir, og sameinaður kór Hreppamanna og Sprettara. Tónleikarnir hefjast kl, 17.00 og aðgangseyrir er kr. 4.000,-. Að loknum tónleikum bjóða Kópavogsmenn allri hersingunni í gestakórunum til veislu. Þetta verður eitthvað!!! - [Nýtt starfsár að hefjast](https://kkh.is/2025/09/15/nytt-starfsar-ad-hefjast/): Á morgun, 16. september, hefjast æfingar kórsins aftur, eftir óvenju stutt haustfrí, en eins og lesendur síðunnar vita og muna eru söngmenn „rétt nýkomnir“ heim úr ævintýraferð vestur um haf, til Bandaríkjanna og Kanada á slóðir Vestur-Íslendinga, og fjallað hefur verið allítarleaga um hér. Starfsárið 2025-2026 verður, venju samkvæmt, viðburðaríkt og skemmtilegt. Hefðbundnir liðir verða á sínum stað: karlakvöld í nóvember og vortónleikar í apríl. Einnig verða á dagskránni kóramót, hagyrðingakvöld, „jólaeitthvað“, æfingahelgar og vorferð, svo einhver dæmi séu dregin fram, en stjórn og söngstjóri vinna að því af metnaði að setja saman spennandi dagskrá, sem verður auðvitað kynnt með […] - [Af Vesturferðinni miklu](https://kkh.is/2025/08/24/af-vesturferdinni-miklu/): Það var hinn 30. júlí 2025 sem Karlakór Hreppamanna lagði, ásamt Sprettskórnum, upp í mikla reisu. Ferðinni var heitið vestur um haf og meginmarkmiðið þátttaka í hátíðarhöldum í Vesturheimi vegna 150 ára afmælis landnáms Íslendinga í Gimli, Kanada. Íslendingadagurinn er haldinn hátíðlegur ár hvert þar í Nýja-Íslandi, um verslunarmannahelgina, en einnig „sunnan við línu“, í Görðum og Mountain í Norður-Dakota þar sem einnig var landnámsbyggð Íslendinga, m.a. Stephans G. Stephanssonar. Kórarnir flugu einmitt frá Íslandi til Bandaríkjanna, lentu í Minneapolis og dvöldu þar tvær nætur á ágætu hóteli steinsnar frá þeim stað sem næstur er Niflheimi, nefndum „Mall of America“ […] - [Tónleikar í Skálholti - Snorri í gull](https://kkh.is/2025/07/28/tonleikar-i-skalholti-snorri-i-gull/): Í gær, sunnudaginn 27. júli var lokahnykkurinn í undirbúningi karlakóranna í Hreppum og Spretti fyrir „Vesturferðina miklu“, sem hefst nk. miðvikudag, og fjallað hefur verið um hér á síðunni. Kórarnir sungu fyrst í morgunmessu hjá séra Kristjáni í Skálholtskirkju, en eftir hádegi var létt æfing fyrir tónleika sem hófust kl. 16.00. Skemmst er að segja frá því að allt gekk snuðrulaust. Reitingur mætti til messu og síðdegis var kirkjan þéttsetin við tónleikana og undirtektir glimrandi, einhver myndi segja „alveg rífandi“. Það var kórmeðlimum sérstakt ánægjuefni að geta með þessum hætti styrkt flygilsjóð kirkjunnar, og alla vega gat Sigurður Helgi vart […] - [Karlakórar syngja í Skálholti](https://kkh.is/2025/07/22/karlakorar-syngja-i-skalholti/): Karlakór Hreppamanna og Sprettskórinn verða með æfingadag og tónleika í Skálholtsdómkirkju næstkomandi sunnudag, 27. júlí. Þetta verður langur dagur, fyrst sungið við messu kl. 11:00 en eftir hádegið verður lokaæfingin og endað á tónleikum sem hefjast kl. 16.00. Aðgangseyrir, kr. 3000, og/eða frjáls framlög, renna óskipt í flygilssjóð Skálholtskirkju. Þetta er lokaundirbúningur kóranna fyrir heimsókn á Íslendingaslóðir í Bandaríkjkunum og Kanda, og þátttöku í hátíðarhöldum vegna 150 ára afmælis landnáms Íslendinga í Gimli. Á efnisskránni eru karlakórsperlur úr ýmsum áttum, ættjarðar- og þjóðsöngvar, í samræmi við tilefnið vestanhafs. Öll hjartanlega velkomin Mðvikudaginn 30. júlí verður svo lagt í’ann, flogið til […] - [Söngskráin 2025](https://kkh.is/2025/05/11/songskrain-2025/): Það er ánægjulegt, og hreint ekki lítils virði, hve margir, fyrirtæki, sveitarfélög og einstaklingar, eru kórnum vinsamlegir og tilbúnir að styðja við starfið. Lýsandi dæmi um það er söngskráin okkar, sem alltaf gengur vel að gefa út af þeirri ástæðu að margir eru hreinlega áskrifendur að auglýsingaplássi, ár eftir ár. Ekki hefur ritstjórn heimasíðunnar gert á því vísindalega rannsókn en ætli nokkur annar kór gefi út sambærilegt rit? Söngskráin er ekki einvörðungu einn mikilvægsti grunnurinn undir fjárhag kórsins heldur ómetanleg heimild um kórinn. Takk fyrir túkall!! Karlakór Hreppamanna sendir öllum velunnurum kórsins bestu þakkir fyrir stuðninginn, og sérstakar kveðjur til […] - [Heiðursmerki afhent](https://kkh.is/2025/04/19/heidursmerki-afhent/): Eftir lokatónleikana var að venju boðið í teiti. Skemmtinefndin hafði undirbúið glæsilegt hlaðborð með mat og drykk, þakkir til þeirra allra. Auðvitað var töluvert sungið, eins og vera ber, spjallað og spaugað. Virkilega skemmtileg kveðjustund fyrir sumarið. Næst á dagskrá er svo árlegi reiðtúrinn góði, Siggi Bjögg bauð öllum viðstöddum í áttræðisafmæli í sumar, æfingar og tónleikar verða í Skálholti í lok júlí, áður en lagt verður upp til Vesturheims 29. júlí, og vísast verða fundin önnur formleg og óformleg tilefni til nærandi samveru. Í lokateitinu bar það einnig til tíðinda að Orðunefnd skilaði af sér umfangsmiklu starfi sem hún […] - [Frá lokatónleikum](https://kkh.is/2025/04/19/fra-lokatonleikum/): Miðvikudagskvöldið 16. apríl sl. héldu KKH og Sprettskórinn síðustu sameiginlegu vortónleikana sína í Félagsheimilinu á Flúðum. Eins og fyrr reyndust þetta vel sóttir, og vel heppnaðir tónleikar. Atli Guðlaugsson hélt vel um alla þræði, Sigurður Helgi lék eins og engill á flygilinn að vanda og Bjarni Atlason söng einsöng með sinni styrku og hljómfögru bassarödd. Á efnisskránni voru mest þekkt kórlög, íslensk ættjarðar- og hátíðalög eftir nokkra af okkar fremstu tónsmiðum og þjóðskáldum. Lagavalið mótaðist af því að kórarnir stefna, eins og fram hefur komið hér á síðunni, vestur um haf síðsumars, á 150 ára afmælishátíð landnáms Íslendinga í Gimli […] - [Af tónleikum](https://kkh.is/2025/04/12/af-tonleikum/): Nú eru fyrstu tvennir tónleikar KKH og Sprettara frá, þetta vorið, og hefur gengið glimrandi vel. Það var smekkflutt hús í Guðríðarkirkju sl. þriðjudag og góð aðsókn í Hveragerðirkirkju í gærkvöld, föstudag 11. apríl. Kórarnir fengu glimrandi móttökur í bæði skiptin. Þá eru einungis eftir lokatónleikarnir í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum, en þeir verða haldnir miðvikudaginn 16. apríl kl. 20:00, og má búast við að þröngt verði setið að venju á okkar „heimavelli“ og því vissara að mæta tímanlega til að tryggja sætið. Meðfylgjandi myndir eru af uppstilltum kór í Guðríðarkirkju og nokkrar úr „græna herberginu“ í Hveragerðiskirkju, þar sem […] - [Lokaæfingin](https://kkh.is/2025/04/05/lokaaefingin/): Lokaæfing Karlakórs Hreppamanna og Sprettskórsins fyrir komandi vortónleika gekk eins og í sögu. Kórarnir hittust í dag í fyrsta tónleikasalnum, Guðríðarkirkju, og þar voru pússaðir af síðustu hnökrarnir. Stemmningin meðal kórfélaganna er mögnuð, mikil eftirvænting að synga loksins saman á alvöru tónleikum fyrir áheyrendur, vonandi fullum sal. Á meðfylgjandi mynd má sjá atvinnumennina, Atla Guðlaugsson, stjórnanda, Bjarna Atlason, einsöngvara, og Sigurð Helga Oddsson, undirleikara. Ekki skal hér og nú sagt til um hvort svipbrigðin lýsi vonbrigðum með frammistöðu kórfélaga eða einlægri og innilegri aðdáun. Það síðarnefnda er þó mun líklegra, og tónleikagestum látið eftir að gefa lokasvar þar um. - [Vortónleikar 2025](https://kkh.is/2025/04/01/vortonleikar-2025/): Nú styttist í vortónleikana okkar, Þeir fyrstu eftir aðeins viku, þann 8. apríl, eins og sjá má á meðfylgjandi auglýsingu. Síðasta æfingin okkar á „heimavelli“ er í kvöld en lokaundirbúningur verður sk. „æfingadagur“ nk. laugardag í Guðríðarkirkju og þá verða báðir kórarnir á staðnum og slípa sig saman. - [Hagyrðingakvöldi frestað](https://kkh.is/2025/03/18/hagyrdingakvoldi-frestad/): Hagyrðingakvöldi, sem halda átti næstkomandi laugardag, 22. mars, í félagsheimilinu á Flúðum, hefur verið frestað um óákveðinn tíma. Þrátt fyrir þetta er fullur hugur á að láta ekki deigan síga, því þessar samkomur hafa undanfarin ár verið mjög vel sóttar og hinar bestu skemmtanir. Tilkynnt verður með góðum fyrirvara um nýja dagsetningu. Það er annars að frétta að æfingar ganga vel og „allt að smella“, enda ekki seinna vænna þar sem styttist óðum í fyrstu tónleika, sem haldnir verða 8. apríl í Guðríðarkirkju, sem stendur í Grafarholtinu í Reykjavík. Þá má geta þess að kórinn fjárfesti nýverið í rafmagnspíanói, glænýju […] - [Skemmtilegur æfingadagur](https://kkh.is/2025/03/11/skemmtilegur-aefingadagur/): Síðastliðinn laugardag. 8. mars, héldu KKH og Sprettskórinn sameiginlegan æfingadag í Árnesi. Eins og kunnugt er munu kórarnir tveir halda sameiginlega vortónleika í apríl næstkomandi, sem nokkurskonar forspil fyrir ævintýraferð á slóðir Vestur-Íslendinga í Norður-Dakota og Kanada. Æfingadagurinn tókst svona líka glimrandi vel, og gott ef við karlarnir fundum ekki aðeins meira til okkar en venjulega, að heyra drynjandi tónana frá svo fjölmennum kór, miðað við mjálmið á hefðbundnum æfingum kóranna hvorum í sínu lagi. Það er kominn mikill spenningur í menn fyrir komandi vortónleika, sem verða þrennir; í Guðríðarkirkju, í Hveragerðiskirkju og í Félagsheimilinu á Flúðum. Að þeim loknum […] - [Spennandi dagskrá framundan](https://kkh.is/2025/02/12/spennandi-dagskra-framundan/): Karlakór Hreppamanna og Sprettskórinn hafa tekið höndum saman þetta söngár. Framundan er tónleika- og skemmtiferð á slóðir Vestur-Íslendinga síðsumars, og verður nánar greint frá því ævintyri öllu síðar. Í ár er einmitt 150 ára afmæli Íslandsbyggðar í Vesturheimi og stendur mikið til af því tilefni hjá Íslendingafélögunum vestanhafs, stórhátíðir bæði í Mountain í Norður-Dakota og Gimli í Kanada. Kórarnir undirbúa sig af kappi fyrir vesturferðina með sameiginlegri lagaskrá, æfingadögum og vortónleikum. Drög að dagskrá fram á haustið lítur svona út: 8. mars: Æfingadagur í Árnesi 22. mars: Hagyrðingakvöld á Flúðum 5. apríl: Æfingadagur í Guðríðarkirkju 8. apríl: Tónleikar í Guðríðarkirkju […] - [Vorferð á Snæfellsnes.](https://kkh.is/2024/01/16/vorferd-a-snaefellsnes/): Stjórn Karlakórsins fékk þá hugmynd í vetur að efna til vorferðar. Fulltrúi annarsbassa í stjórn, Loftur Magnússon, bauðst til að skipuleggja ferð fyrir kórinn og maka áslóðir forfeðra sinna á Vesturlandi og með Miðhraun á sunnanverðu Snæfellsnesi sembækistöð fyrir hópinn.Ekki leit þetta vel út daginn fyrir brottfarardag, tuttugu sentimetra jafnfallinn snjór varyfir öllu og líklegra að úr yrði skíðaferð en vorferð. Snjóinn tók þó fljótlega upp ogallt leit betur út.Haldið að Tindum.Rútan lagði af stað frá Flúðum og týndi upp ferðalangana á leiðinni á Selfoss. Fyrstvar þó farið að Tindum á Kjalarnesi þar sem Atli stjórnandi og frú búa ásamtstórfjölskyldu. […] - [Karlakvöld](https://kkh.is/2020/01/29/karlakvold/): Bráðskemmtilegt Karlakvöld var haldið þann 1. nóvember sl. Samkoman var að þessu sinni í höndum annars bassa sem að venju leggur sig mjög fram um að gera kvöldið eftirminnilegt og skemmtilegt fyrir gestina. Ari Eldjárn var fenginn til að vera með uppistand og sló hann rækilega í gegn. Menn veltust um af hlátri bókstaflega. Ara var starsýnt á feitt hrossakjötið og hrossabjúgun og sagði nokkuð öruggt að læknirinn hans fengi bráðakransæðastíflu eða hjartaáfall við það eitt að horfa á það. Raunin var þó sú að engan þurfti að stuða með hjartastuðtækinu þó að átið hafi verið með ólíkindum. Kokkurinn sagði […] - [Karlakvöldið 2019](https://kkh.is/2019/10/11/karlakvoldid-2019/): Hið árlega Karlakvöld Karlakórs Hreppamanna verður haldið í Félagsheimili Hrunamanna föstudagskvöldið 1. nóvember. Áhugasömum er bent á að setja sig í samband við kórfélaga. Sjá nánari upplýsingar í auglýsingu: - [Færeyjar 2019](https://kkh.is/2019/04/23/faereyjar-2019/): Myndir úr Færeyjar ferðinni sem farin var 12.-15. apríl. - [Skagafjörður - Dalvík, haust 2018](https://kkh.is/2019/04/23/skagafjordur-dalvik-haust-2018/): Guðmundur Óli, stjórnandi okkar Karlakórs Hreppamanna tók þá djörfu ákvörðun að fara með okkur í söngferð norður í Skagafjörð og á sínar heimaslóðir á Dalvík dagana 9.-11. nóv. Hann taldi okkur greinilega reiðubúna að „performera“ í Miðgarði í Varmahlíð og þar er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur því við höfðum verið varaðir við að þar mætti enginn á karlakórstónleika nema hjá Karlakórnum Heimi, enda bækistöðvar þeirra þar. Við fórum eftirminnilega ferð í Skagafjörðinn árið 2010 í boði Heimis til að syngja þar á Sæluviku með þeim ásamt fleiri kórum. Þá var að sjálfsögðu troðfullt hús og […] - [Tónleikar vorið 2019](https://kkh.is/2019/03/20/tonleikar-vorid-2019/): Vortónleikaröð Karlakórs Hreppamanna nú í apríl hefst með tvennum tónleikum í Færeyjum, þann 13. apríl kl. 15:00 í Miðhöllinni á Skúlatröð í Klaksvík (auglýsing pdf.) og þann 14. apríl kl 16:00 í Vesturkirkjunni í Þórshöfn (auglýsing pdf.). Hér heima verða þrennir tónleikar, þann 25. apríl í Guðríðarkirkju, þann 27 apríl í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum og þann 29. apríl í Selfosskirkju. allir hefjast þeir kl 20:00. Dagskrá tónleikanna er fjölbreytt þar sem horft er til fjalla og alls þess sem gerist á fjöllum, tengt gleði og sorg. Stjórnandi Karlakórs Hreppamana er Guðmundur Óli Gunnarsson.Miðaverð 4.000,- kr.Allir hjartanlega velkomnir. Auglýsing pdf. - [Hagyrðingakvöld og söngur](https://kkh.is/2019/03/06/hagyrdingakvold-og-songur/): Karlakór Hreppamanna þakkar kærlega öllum fyrir ánægjulega samveru á Hagyrðingakvöldinu og söngnum. Það var gaman að sjá hvað margir mættu og skemmtu sér vel.Sérstakar þakkir fá Karlakór Kjalnesinga og hagyrðingarnir Reynir Hjartarson, Jóhannes Sigfússon, Pétur Pétursson, Magnús Halldórsson, Sigurjón Jónsson, Gylfi Þorkelsson og Birgir Sveinbjörnsson sem stýrði hagyrðingunum af mikilli snilld. Hér er hægt að skoða myndir frá kvöldinu. Í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum, laugardaginn 16. mars kl. 20:00.Sjá nánari upplýsingar í auglýsingu hér fyrir neðan.Allir hjartanlega velkomnir. - [Jólakveðja 2018](https://kkh.is/2018/12/22/jolakvedja-2018/):   Þökkum kærlega góðar viðtökur á árinu sem er að líða. Sjáumst heil á nýju ári. Bestu jólakveðjur, Karlakór Hreppamanna   - [Skagafjörður - Dalvík 2018](https://kkh.is/2018/11/19/skagafjordur-dalvik-2018/): Guðmundur Óli, stjórnandi okkar Karlakórs Hreppamanna tók þá djörfu ákvörðun að fara með okkur í söngferð norður í Skagafjörð og á sínar heimaslóðir á Dalvík dagana 9.-11. nóv. Hann taldi okkur greinilega reiðubúna að „performera“ í Miðgarði í Varmahlíð og þar er ekki ráðist á garðinn þar sem hann er lægstur því við höfðum verið varaðir við að þar mætti enginn á karlakórstónleika nema hjá Karlakórnum Heimi, enda bækistöðvar þeirra þar. Við fórum eftirminnilega ferð í Skagafjörðinn árið 2010 í boði Heimis til að syngja þar á Sæluviku með þeim ásamt fleiri kórum. Þá var að sjálfsögðu troðfullt hús og […] - [Karlakór Hreppamanna á ferð um norðurland](https://kkh.is/2018/10/30/karlakor-hreppamanna-a-ferd-um-nordurland/): Miðgarði Skagafirði föstudaginn 9. nóvember kl. 20:00 Bergi Dalvík laugardaginn 10. nóvember kl. 17:00 Miðaverð kr. 4.000,- Auglýsinguna má nálgast hér;  Auglýsing. - [Vortónleikar 2018](https://kkh.is/2018/04/11/vortonleikar-2018/): Kæru landsmenn!Stóra stundin er runnin upp; Karlakór Hreppamanna heldur vortónleika sína. Eftir þrotlausar en skemmtilegar æfingar með nýjum stjórnanda, Guðmundi Óla Gunnarssyni og splunkunýju lagaprógrammi er komið að því að kórinn leggi afraksturinn í dóm landsmanna. Bráðskemmtileg lög úr íslenskum kvikmyndum verða í boði auk þess sem hin frábæra söngkona Kristjana Stefánsdóttir mun syngja einsöng. Vignir Þór Stefánson, Jón Rafnson og Erik Quick munu sjá um hljóðfæraleik. Nú er bara að skoða hvaða dagsetning hentar ykkur kæru landsmenn:  Auglýsing í pdf. Miðaverð kr. 3.500,-.Frítt fyrir börn.Verið hjartanlega velkomin, hlökkum til að sjá ykkur.   - [Jólakveðja 2017](https://kkh.is/2017/12/21/jolakvedhja-2017/) - [München 2017](https://kkh.is/2017/10/31/muenchen-2017/): Karlakór Hreppamanna fagnaði 20 ára afmæli sl. vor með veglegum afmælistónleikum. Þessi tuttugu ár hafa liðið ógnarhratt og sagt er, ef að mönnum finnst svo vera, þá sé skýringin sú að það hafi verið gaman. Toppurinn á þessu afmælisári, fyrir utan vortónleikaröðina, var ferð kórsins til Munchen í Þýskalandi dagana 13. – 17. október, skömmu eftir hina miklu bjórhátíð Oktoberfest. Einhverjir félaganna í kórnum höfðu talsverðar áhyggjur af því að bjórþurrð gæti verið á þessu svæði eftir hátíðina. Það reyndist þó ekki vera okkur til mikils léttis. Þessa daga var brakandi blíða í suður Þýskalandi svo að það var gott […] - [Kaflaskil hjá KKH](https://kkh.is/2017/10/31/kaflaskil-hja-kkh/): Karlakór Hreppamanna fagnaði 20 ára afmæli sl. vor með veglegum afmælistónleikum. Þessi tuttugu ár hafa liðið ógnarhratt og sagt er, ef að mönnum finnst svo vera, þá sé skýringin sú að það hafi verið gaman. Toppurinn á þessu afmælisári, fyrir utan vortónleikaröðina, var ferð kórsins til Munchen í Þýskalandi dagana 13. – 17. október, skömmu eftir hina miklu bjórhátíð Oktoberfest. Einhverjir félaganna í kórnum höfðu talsverðar áhyggjur af því að bjórþurrð gæti verið á þessu svæði eftir hátíðina. Það reyndist þó ekki vera okkur til mikils léttis. Þessa daga var brakandi blíða í suður Þýskalandi svo að það var gott að […] - [Afmælistónleikar Karlakórs Hreppamanna](https://kkh.is/2017/03/22/afmaelistonleikar-karlakors-hreppamanna/): Árið 1997 bættist Karlakór Hreppamanna í flóru íslenskra karlakóra og hefur starfað óslitið síðan. Í tilefni af tuttugu ára afmælinu verður meira haft við á vortónleikum en áður þar sem þrír aðrir karlakórar verða þátttakendur í þeim. Afmælistónleikarnir verða haldnir í íþróttahúsinu á Flúðum, í Selfosskirkju og í Víðistaðakirkju í Hafnarfirði. Efnisskráin samanstendur af úrvali laga og verka sem kórinn hefur flutt gegnum tíðina. Einsöngvari á öllum tónleikunum verður Guðmundur Karl Eiríksson baríton. Það var 1. apríl fyrir réttum tuttugu árum sem á þriðja tug karla kom saman á Flúðum ásamt Edit Molnár og ákveðið var að stofna kór. Æfingar […] - [Karlakór Hreppamanna 20 ára - Afmælistónleikar](https://kkh.is/2017/03/07/karlakor-hreppamanna-20-ara-afmaelistonleikar/): Árið er 1997, og ekki þótti mega dragast lengur að stofna karlakór í uppsveitum Árnessýslu. Boðað var til fundar um stofnunina 1. apríl. Á þriðja tug karla mætti og söngstjórinn Edit, alls óhrædd við dagsetninguna – og það var ekki aftur snúið. Æfingum var ekki sinnt með hangandi hendi því strax 30. apríl söng kórinn nokkur lög á Heilsustofnun NLFÍ í Hveragerði. Síðan hefur ekkert lát verið á söng kórsins eða þátttöku karla í honum, árin hafa hlaðist upp og brátt verður kórinn tuttugu ára. Edit Molnár hefur verið stjórnandi hans frá upphafi og Miklós Dalmay píanóleikari og hafa bæði […] - [Þrettándaball á Flúðum](https://kkh.is/2017/01/02/threttandaball-a-fludhum/): Karlakór Hreppamanna óskar velunnurum kórsins sem og landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs og farsældar á nýju ári.Þökkum kærlega allar góðar samverustundir á liðnu ári. Á nýju ári fögnum við 20 ára afmæli kórsins. Fjölbreytt dagskrá verđur á afmælisárinu, þar sem byrjađ verđur á léttu nótunummeđ þrettándaballi í Félagsheimilinu á Flúđum föstudaginn 6.janúar.Stuđlabandiđ heldur uppi fjörinu eins og þeim einum er lagiđ.Miðaverð: 3.000,- kr.Aldurstakmark: 18 ára.Sjáumst í stuði!       - [Hástemmdir í Hásölum](https://kkh.is/2016/11/28/hastemmdir-i-hasoelum/):   Kvennakór Hafnarfjarðar gerði okkur KKH þann heiður að skella sér austur að Flúðum til að syngja á vortónleikunum okkar í apríl sl. Við náðum að endurgjalda þann greiða 16. nóvember þar sem þær héldu tónleika í Hásölum í Hafnarfirði á degi íslenskrar tungu. Þessi viðburður kallaði á rútuferð í fjörðinn og rútuferðir hafa alltaf verið vinsælar hjá kórnum, að minnsta kosti hjá flestum þar. Tilefnið; Dagur íslenskrar tungu, kallaði á að sungnar yrðu einhverjar tónlistarperlur við texta eftir höfuðskáldin Jónas Hallgrímsson og Hannes Hafstein. Fyrir valinu urðu klassísk karlakórslög eins og „Fjallið Skjaldbreiður“,  „Er sólin hnígur“ og „Áfram“ en […] - [Tónleikar í Hafnarfirði](https://kkh.is/2016/11/12/tonleikar-i-hafnarfirdhi/): Miðvikudaginn 16. nóvember n.k. mun Kvennakór Hafnarfjarðar og Karlakór Hreppamanna halda tónleika í Hafnarfirði. Sjá nánar auglýsingu. Allir hjartanlega velkomnir. - [Þúsund kallar!](https://kkh.is/2016/05/20/thusund-kallar/):   Sá merki viðburður átti sér stað dagana 12.-14. maí s.l. að haldið var í Hörpunni norrænt karlakóramót, The Nordic Male Choir Festival 2016. Tuttuguogfjórir karlakórar, íslenskir, færeyskir, norskir sænskir og finnskir tóku þátt í þessu móti. Einnig var þar margverðlaunaður svissneskur gestakór Männerstimmen Basel. Undirbúningur allur var í höndum Karlakórsins Fóstbræðra, sem með því að halda þetta mót, sló tvær flugur í einu höggi því þeir fagna einnig 100 ára afmæli sínu á þessu ári. Fóstbræður hafa sennilega aldrei verið fleiri eða rúmlega eitthundrað og líklega aldrei betri.   Mótið hófst með móttöku kóranna á fimmtudeginum. Á föstudeginum var […] - [Vortónleikar 2016](https://kkh.is/2016/04/09/vortonleikar-2016/):   Auglýsing í pdf. Allir hjartanlega velkomnir.   - [Hross og skál - Æfingadagur á Eyrarbakka](https://kkh.is/2016/02/10/hross-og-skal-aefingadagur-a-eyrarbakka/): Karlakór Hreppamanna lagði land undir fót og hélt á Eyrarbakka laugardaginn 6. febrúar til að læra lög og texta. Edit stjórnaði en Miklos spilaði undir og sólaði stundum. Enda þótt ekki verði uppljóstrað mikið um prógrammið sem kórinn er að æfa fyrir vorið þá skal þess getið að orðin hross og skál koma oft fyrir í textum. Að loknum æfingadegi Karlakórsins var haldið að Kumbaravogi og sungið fyrir heimilisfólk en endað svo í humarsúpu á Fjöruborðinu á Stokkseyri. Þar var mikið sungið en nokkuð sopið. Þá kvað Gylfi Þorkelsson:  Svona góður karlakór kyrjar ekki víða. En orðspor hans til fjandans […] - [Jólakveðja 2015](https://kkh.is/2015/12/16/jolakvedhja-2015/):     - [Karlakórinn á N4](https://kkh.is/2015/12/15/karlakorinn-a-n4/): Á sjónvarpsstöðinni N4 eru þættir sem heita „Að sunnan„. Það eru þau Margrét Blöndal og Sighvatur Jónsson sem fjalla um málefni tengd suðurlandi. Í maí sl. heimsóttu þau meðal annars okkur þar sem við vorum á æfingu í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum. Sjá nánar hér, undir liðnum „Á kóræfingu með Hreppamönnum – Hrunamannahreppi„.   - [Að loknu Karlakvöldi 2015 ...](https://kkh.is/2015/11/12/adh-loknu-karlakvoeldi-2015/): „Karlakvöld“ kórsins var haldið föstudaginn  6. nóvember  í boði 2. bassa og er óhætt að segja að það hafi tekist afburða vel. Um 240 karlar mættu fullir eftirvæntingar um mat og skemmtiatriði sem í vændum voru. Þeir fóru svo aftur heim að skemmtun lokinni ennþá fullir að vísu en með væntingar uppfylltar. - [Karlakvöldið 2015](https://kkh.is/2015/10/22/karlakvoeldidh-2015/): Hið árlega Karlakvöld Karlakórs Hreppamanna verður haldið í Félagsheimili Hrunamanna föstudagskvöldið 6. nóvember. Áhugasömum er bent á að setja sig í samband við kórfélaga í 2. bassa. Sjá nánari upplýsingar í auglýsingu:(opnast sem pdf ef smellt er á myndina)     - [Tónleikum í Guðríðarkirkju frestað til 31. mars](https://kkh.is/2015/03/25/tonleikum-i-gudhridharkirkju-frestadh-til-31-mars/): Vinsamlegast athugið! Af óviðráðanlegum orsökum þurfum við því miður að fresta fyrirhuguðum tónleikum sem vera áttu í Guðríðarkirkju 25. mars til þriðjudagsins 31. mars kl. 20:00.   - [Vortónleikar 2015](https://kkh.is/2015/03/21/vortonleikar-2015/): Auglýsing í pdf. Allir hjartanlega velkomnir. - [Fréttatilkynning um vortónleikana](https://kkh.is/2015/03/07/frettatilkynning-um-vortonleikana-2015/): Karlakór Hreppamanna leggur nú lokahönd á undirbúning árlegra vortónleika sinna sem eru reyndar óvenju snemma þetta árið. Að þessu sinn heldur kórinn þrenna tónleika, þá fyrstu í Selfosskirkju 21. mars og sama dag í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum. Síðustu tónleikarnir verða svo í Guðríðarkirkju í Reykjavík miðvikudaginn 25. mars. Einsöngvari á öllum tónleikunum verður Þóra Einarsdóttir sópran. Stjórnandi kórsins er Edit Molnár og píanóleikari Miklós Dalmay. Þema dagskrárinnar að þessu sinni er náttúra, maður, hestur. Auk lagavals í anda þess efnis verður sýning á völdum ljósmyndum úr stóru safni Sigurðar Sigmundssonar frá Syðra-Langholti þar sem saman fer í myndum viðfangsefni […] - [Opin æfing þriðjudagskvöldið 7. október](https://kkh.is/2014/09/28/opin-aefing-thridhjudagskvoeldidh-7-oktober/): Fátt er betra sálinni en að syngja. Það geta allir vitnað um sem hafa tekið þátt í kórsöng eða eins og skáldið sagði: „Saungurinn er hin öruggasta leið til að lyfta mannsandanum frá hrjúfum hversdagsleik.“ Það er ekki aðeins kórsöngurinn sem lyftir andanum heldur og ekki síður félagsskapurinn sem fylgir í kaupbæti. Karlakór Hreppamanna er nú að hefja vetrarstarfið og að vanda verður það viðburðaríkt og spennandi. Meginþema söngsins í vetur verður: náttúra – maður – hestur, skreytt stemningu ljósmynda úr safni Sigurðar Sigmundssonar ljósmyndara frá Syðra- Langholti. Að vori leggur kórinn svo í ferð með vortónleika sína sem byggjast […] - [Vortónleikar 2014](https://kkh.is/2014/03/25/vortonleikar-2014/): Hafið, fiskveiðar og sjómennska hafa verið stór hluti af  þjóðarsál Íslendinga um aldir. Þrautseigja og hetjudáðir sjósóknara í gegnum tíðina hafa lifað með þjóðinni í sögum, ljóðum og sönglögum um þessa dáðu stétt sem dregið hefur björg í bú en jafnframt fært miklar fórnir í baráttu sinni við hafið. Karlakór Hreppamanna hefur söngárið 2013-14 undirbúið tónleika undir heitinu „Nú sigla svörtu skipin“,sem er óður til hafsins og sjómennskunnar. Titillinn vísar í lag Karls Ó. Runólfssonar við ljóð Davíðs Stefánssonar. Mörg af stórbrotnustu kórverkum íslenskra tónbókmennta eru einmitt ort til sjóhetjanna, en sjómannalög eru líka dillandi létt með grípandi laglínum. Slík […] - [Ferðasagan til Rómar](https://kkh.is/2013/12/11/ferdhasagan-til-romar/): Nú hefur ferðasögunni til Rómar verið gerð góð skil bæði í máli og í myndum hér á heimasíðu kórsins. Einnig hafa verið sett þrjú myndbönd inn á Youtube sem tekin voru á tónleikunum sem kórinn hélt í S. Paolo Entro le Mura kirkjunni í Róm á Ítalíu. Í valglugganum „Fróðleikur“ hér vinstra megin á síðunni, nánar tiltekið undir tenglinum „Ferðalög kórsins“ er hægt að lesa ferðasöguna sem Þorleifur Jóhannesson skráði. Undir tenglinum „Myndir“ má finna myndaalbúmið Róm 2013 sem inniheldur 144 myndir sem Áslaug Bjarnadóttir tók saman og ef hver mynd er skoðuð fyrir sig má lesa smá texta sem […] - [Róm 2013](https://kkh.is/2013/11/23/rom-2013/): Róm 2013  Tvísýn veðurspá fyrir helgina 10.- 14. október fyrir Rómarsvæðið á Ítalíu skyggði svolítið á spenninginn fyrir ferð Karlakórs Hreppamanna þangað.  Síðar kom þó í ljós að þær áhyggjur voru óþarfar því að kórinn fékk hið besta veður þessa daga, 20 – 28 stiga hita.    Undirbúningur fyrir þessa ferð hafði átt sér nokkurn aðdraganda. Edit, stjórnandi kórsins, hafði um nokkura ára skeið æft inná milli lög úr óperum meistara Giuseppe Verdi og fleiri tónsnillinga með það í huga að halda vortónleikaröð með óperutónlist og kórum úr þekktustu óperunum. Það varð svo að veruleika vorið 2013.  Kórinn var þá […] - [Tónleikar í Róm](https://kkh.is/2013/10/05/tonleikar-i-rom/): Karlakór Hreppamanna heldur tónleika föstudaginn 11. október nk. í Róm á Ítalíu. Allir hjartanlega velkomnir 🙂     - [Óperutónleikar vorið 2013](https://kkh.is/2013/04/06/operutonleikar-voridh-2013/):     Allir hjartanlega velkomnir.   - [Góu-tónleikar 8. mars 2013](https://kkh.is/2013/03/07/gou-tonleikar-8-mars-2013/): Góu-tónleikar Raddbandafélags Reykjavíkur verða í Fríkirkjunni í Reykjavík föstudagskvöldið 8. mars kl. 20:00.Gestir verða Karlakór Hreppamanna og Söngfélagið Góðir grannar.      - [Vel heppnað listaverkabingó](https://kkh.is/2013/03/07/vel-heppnadh-listaverkabingo/): Listaverkabingóið tókst afar vel eins og vænta mátti, enda í öruggum höndum félaga Ásmundar Sverris sem er þrautreyndur stjórnandi. M.a. hefur hann þurft að stýra fundum bæjarstjórnar á Selfossi og í þá ormagryfju hætta sér ekki nema hugrökkustu menn, nema kannski Þingeyingar. Margir mætir listamenn gáfu verk sín. Voru það bæði málverk af ýmsum stærðum og gerðum sem og skúlptúrar og nytjamunir. Allt afar fallegt og verðmætt. Til að slá á spennuna hjá taugatrekktum spilurunum var gert hlé og ungt tónlistafólk kom fram og söng og spilaði. Glæsileg frammistaða hjá þessu hæfileikaríka unga fólki. Spennan í bingóinu var mikil allan […] - [Listaverkabingó](https://kkh.is/2013/02/06/listaverkabingo/):   Listaverkabingó Föstudaginn 15. febrúar kl. 20:30 í Félagsheimili Hrunamanna – Flúðum Í vinninga verða listaverk eftir þekkta sunnlenska listamenn. Skemmtiatriði: Ungir tónlistarmenn í fremstu röð leika á hljóðfæri. Missið ekki af spennandi leik, dýrmætum vinningum og góðri tónlist. Húsið opnar kl. 20:00. Allir hjartanlega velkomnir. Karlakór Hreppamanna - [Ball og bingó](https://kkh.is/2013/02/05/ball-og-bingo/):   Þrettándaball kórsins tókst frábærlega í alla staði. Fullt hús og mikið fjör fram undir morgun. Það virðist því ljóst að full þörf er á dansleik sem þessum á þrettándanum eða velviljinn sé svona mikill í garð Karlakórsins. Nema hvoru tveggja sé. Við karlarnir erum í það minnsta í sjöunda himni og þetta hvetur okkur áfram á menningarsviðinu. Áfram verður haldið í fjáröflun kórsins til að geta klárað hið metnaðarfulla óperuverkefni í vor. Næst á dagskrá í þeim málum er listaverkabingó sem haldið verður fljótlega. Munum við greina nánar frá  því hér þegar nær dregur en einnig verður það auglýst […] - [Æfingadagur á Sólheimum](https://kkh.is/2013/02/05/aefingadagur-a-solheimum/):   Ákveðið var að byrja árið með trukki og fyrsta æfing kórsins var þriðjudaginn 15. janúar og strax á laugardeginum eftir haldinn æfingadagur. Æft var á Sólheimum í Grímsnesi þar sem aðstæður allar eru til fyrirmyndar. Byrjað var að æfa klukkan 11 um morguninn og um eittleytið var farið í súpu í mötuneytið. Karlarnir höfðu vara á sér í matnum minnugir þess sem gerðist síðast er við æfðum þar. En það var þannig að fyrir nokkrum árum æfði kórinn á sama stað og klukkan eitt kom að súpunni. Menn voru orðnir svangir og súpan sérlega góð. Fór svo að kokkurinn […] - [Þrettándagleði á Flúðum](https://kkh.is/2012/12/18/threttandagledhi-a-fludhum/): Skipuð var „sérstök fjáröflunarnefnd“ til að afla fjár til Verdi/ Wagner verkefnis okkar og fyrirhugaðrar Ítalíuferðar næsta haust. Í hana voru settir ofvirkustu félagarnir í kórnum. Þeir funduðu fljótlega og afraksturinn var langur listi með tillögum um fjáröflunarleiðir. Ef allar þær tillögur yrðu framkvæmdar þá færu allar helgar og meira til í þau verkefni. Margar frábærar tillögur komu fram á þessum lista og nokkrar hafa verið valdar úr til að framkvæma. Sú fyrsta er hin bráðsnjalla hugmynd um „Þrettándagleði“. Kunnugir telja uppsafnaða dans- og útrásarþörf undirliggjandi á Suðurlandi sem vert væri að láta reyna á um áramótin. Í því skyni […] - [Útvarpsþáttur um Karlakór Hreppamanna](https://kkh.is/2012/11/22/utvarpsthattur-um-karlakor-hreppamanna/): Á dagskrárlið RÚV, nánar tiltekið á Rás1, er þáttaröð er nefnist Raddir. Þættirnir eru byggðir á frásögnum og söng kórfélaga sem finnst fátt skemmtilegra en að syngja saman. Miðvikudaginn 21. nóvember s.l. var þáttur um Karlakór Hreppamanna. Hér má hlusta á þáttinn.       - [Reiðtúr júní 2012](https://kkh.is/2012/09/13/reidhtur-juni-2012/): Reiðtúrinn 2012 Alltaf virðist veðrið leika við okkur í reiðtúrum karlakórsins en sjaldan hefur það þó verið eins frábært eins og í þessum. Áformað var að hittast hjá Agnari á Ísabakka og ríða yfir í Tungur yfir hina nýju Hvítárbrú og svo áfram yfir Tungubrú upp hjá Fellskoti og þar niður að ánni aftur og fara þar óþekkta og fallega leið upp að Tungnaréttum. Eftir stutt stopp í réttunum átti svo að ríða til baka í grill að Ísabakka.  Allt gekk þetta upp og lagði fjölmennur hópur karla og kvenna af stað um tvöleytið. Rúnar B. Guðmundson bóndi í Vatnsleysu […] - [Söngæfingar að hefjast að nýju](https://kkh.is/2012/09/13/soengaefingar-adh-hefjast-adh-nyju/):   Spennandi söngvetur er framundan hjá Karlakór Hreppamanna því Menningarráð Suðurlands hefur tekið ákvörðun um að styrkja kórinn til að takast á við óperutónlist með Giuseppe Verdi  í forgrunni. Hið fræga tónskáld rómantísku stefnunnar Giuseppe Verdi samdi margar af frægustu óperum sem enn njóta hvað mestra vinsælda í dag og má þar nefna „Il Trovatore“ sem verið er að setja upp í Hörpunni á þessu hausti, Rigoletto, La traviata og Aidu. Í þessum óperum eru margir glæsilegir  kórar sem Karlakórinn hyggst spreyta sig á. En kórinn mun einnig leita fanga víðar í óperuheiminum og vera með á dagskrá í vetur svo sem […] - [Sameiginlegir stórtónleikar 5. maí](https://kkh.is/2012/05/03/sameiginlegar-stortonleikar/): Karlakór Hreppamanna, Karlakórinn Ernir frá Ísafirði og Söngsveitin Víkingar frá Suðurnesjum halda sameiginlega stórtónleika laugardagskvöldið 5. maí. Tónleikarnir verða í Félagsheimili Hrunamanna, Flúðum og hefjast kl. 20:30.Allir hjartanlega velkomnir. Sjá auglýsingu (pdf-skjal). - [Tónleikar 5. maí á Flúðum](https://kkh.is/2012/04/28/tonleikar-5-mai-a-fludhum/): Karlakór Hreppamanna, Karlakórinn Ernir frá Ísafirði og Söngsveitin Víkingar frá Suðurnesjum halda sameiginlega stórtónleika laugardagskvöldið 5. maí. Tónleikarnir verða í Félagsheimili Hrunamanna, Flúðum og hefjast kl. 20:30. Allir hjartanlega velkomnir. Sjá auglýsingu (pdf-skjal) - [Heklumótið á Ísafirði](https://kkh.is/2012/04/25/heklumotidh-a-isafirdhi/):   Uppúr klukkan sex um morgunin þann 21. apríl renndi rúta úr hlaði Félagsheimilisins á Flúðum, ferðinni var heitið á Heklumótið á Ísafirði. Heklumótið er mót norðlenskra karlakóra, haldið fjórða hvert ár. Karlakór Hreppamanna var boðið að koma þar fram sem fulltrúi sunnlenskra karlakóra sem var að sjálfsögðu mikill heiður. Rútan ók mannskapnum á Reykjavíkurflugvöll og vélin var komin í loftið klukkan 8:30. Það varð fljótlega ljóst að ekki voru allir vanir að fljúga innanlands og brá sumum í brún þegar - [Vortónleikar 2012](https://kkh.is/2012/04/11/vortonleikar-2012/): Allir hjartanlega velkomnir á tónleika Karlakórs Hreppamanna sem verða laugardaginn 14. apríl. Kl. 15:00 í Fjölbrautarskóla Suðurlands, SelfossiKl. 20:30 í Félagsheimili Hrunamanna, Flúðum Gestir:Raddbandafélag ReykjavíkurUpptaktur, samspilshópur úr Tónlistarskóla Árnesinga   Sjá auglýsingu.   - [Engin pása!](https://kkh.is/2012/03/07/engin-pasa/):   Heldur færðist  ró yfir hlutina hjá kórnum eftir þátttöku hans í vel heppnuðum Þrastartónleikunum en  það er ljóst að það verður ekki í langan tíma. Næsta verkefni  kórsins er Heklumótið á Ísafirði sem er sambærilegt mót og Kötlumótið sem haldið var á Flúðum í október 2010. Karlakórinn Ernir frá Ísafirði er mótshaldari í ár. Mótið  fyrir norðan verður haldið dagana 21.–22. apríl n.k. og er Karlakór Hreppamanna boðið að syngja þar sem gestakór.  Fyrir þá tónleika er nú æft stíft fullt af nýjum lögum sem allir kórarnir syngja saman. Dagskráin fram á vor er einnig öll að skýrast.  Líkur […] - [Þrestir 100 ára í Hörpunni](https://kkh.is/2012/02/12/threstir-100-ara-i-hoerpunni/): Karlakórinn Þrestir í Hafnafirði fagnar 100 ára afmæli sínu í ár og gera um leið tilkall til þess að vera talinn sá karlakór á Íslandi sem hefur starfað hvað lengst. Í tilefni þessara tímamóta ætla þeir að halda söngveislu mikla í Elborgarsal Hörpunnar. Hafa þeir fengið til liðs við sig marga af  fremstu söngvurum landsins og nokkra vel valda karlakóra, þar á meðal Karlakór Hreppamanna. Tónleikarnir verða haldnir í Hörpunni þann 19. febrúar en því miður er löngu uppselt á þessa tónleika. Unnendur karlakóratónlistar geta þó glaðst yfir því að  sjónvarpið mun taka herlegheitin upp og í bígerð er að […] - [Jólahlaðborð](https://kkh.is/2011/12/14/jolahladhbordh/): Kórfélagar voru greinileg ekki að baki dottnir eftir Karlakvöldið því þann 9. des. var haldið upp að Geysi í jólahlaðborð. Þátttaka kórfélaga og maka var góð því þar voru tæplega áttatíu manns á vegum kórsins. Má segja að allir hafi mætt sem höfðu löglega afsökun nema kannski Grétar Skúlason sem tók jólahlaðborð hjá Flúðasveppum fram yfir okkar og eru hans mál nú í skoðun hjá stjórn kórsins, svona heildstætt og verður að segja að vonir hans um að hreppa stöðu nótnavarðar hafa minnkað til muna. Á Geysi voru þvílíkar kræsingar á borðum að undrun sætti má jafnvel líkja þeim við […] - [Kátir voru karlar!](https://kkh.is/2011/12/14/katir-voru-karlar/): Vel heppnað Karlakvöld er nú að baki þar sem metþátttaka var. Annar bassi sá um allan undirbúning að þessu sinni og setti bæði leikþátt á svið og ýmis skemmtiatriði. Gísli Einarsson úr „Landanum“ var veislustjóri og er óhætt að segja að hann hafi staðið undir væntingum. Að þessu sinni var feitt hrossaket í matinn með kartöflum og uppstúfi og meira að segja var grænmeti með, bæði grænar ora-baunir og rauðkál. Var öllu þessu gerð svo góð skil að varla var nægur afgangur til fyrir bassana og lá við stympingum um síðustu bitana. Er áætlað að milli 500 – 600 gr. […] - [Karlakvöldshátíð 11.11.11](https://kkh.is/2011/11/08/karlakvoeldshatidh-111111/):   Framundan er mikil gleðihátíð hjá kórnum. Komið er að hinni árlegu karlakvöldshátið kórsins sem án efa er með skemmtilegri viðburðum á Suðurlandi og gott ef ekki landinu öllu. Kraftmikill söngur, gamanmál og jafnvel heilu leikþættirnir eru frumsamdir og fluttir þetta kvöld svo ekki sé minnst á matinn sem er ekki beinlínis úr smiðju Laufeyjar Steingrímsdóttur hjá Matvælaráði en mjög saðsamur og bragðgóður. Kórmeðlimir bjóða með sér karlkyns vinum og ættingjum á þetta kvöld en ef einhver er ekki með tengsl inn í kórinn en hefur mikinn áhuga á að koma er um að gera að hafa samband við Aðalstein […] - [Reykjavík vor 2011](https://kkh.is/2011/11/07/reykjavik-vor-2011/):     Af blönduðum karlakórum og öðrum. Þá er skemmtilegum söngvetri lokið og fjórtándu vortónleikar kórsins að baki. Kórinn tók endasprettinn með stæl og hélt flotta tónleika í Félagsheimilinu en einnig í Guðríðarkirkju í Grafarholti. Á prógramminu voru hvoru tveggja klassísk karlakórslög og melódísk kórverk eftir meistara Franz Liszt. Lögin eftir Liszt voru sýnishorn úr söngskrá næsta vetrar þar sem kórinn mun strax næsta haust byrja vetrarstarfið með tónleikaröð á Selfossi, í Reykjavík og á Akureyri. Vortónleikarnir á Flúðum tókust afar vel að okkar mati og ekki skemmdi hin glæsilega og efnilega söngkona Halla Dröfn Jónsdóttir fyrir skemmtuninni. Söng hún […] - [Reiðtúr haust 2010](https://kkh.is/2011/11/07/reidhtur-haust-2010/): Reiðtúrinn 2010 Þeir fóru á mis við frábæra skemmtun í fallegu veðri sem komust ekki í reiðtúr karlakórsins þann 17. september s.l. Hópurinn sem lagði af stað í sól og blíðu frá Syðra-Langholti var eitthvað á fjórða tuginn en svo bættust nokkrir við á leiðinni. Leiðin sem var farin að þessu sinni lá yfir Stóru-Laxá, sem varla stóð undir nafni því svo vatnslítil var hún, á vaði hjá Ósabakka og þaðan var svo riðið eftir bökkunum austur að Gunnbjarnarholti. Þar tóku á móti ferðahópnum af alkunnum höfðingsskap hjónin Berglind og Arnar Bjarni. Arnar Bjarni er kórfélagi í orlofi því það […] - [Skagafjörður vor 2010](https://kkh.is/2011/11/07/skagafjoerdhur-vor-2010/):     Sæluvika í Skagafirði. Loksins lét Karlakórinn Heimir verða að því að bjóða Karlakór Hreppamanna til sín á Sæluvikutónleika í Miðgarði í Skagafirði. Til að undirbúa sig gáfu þeir út fjórar plötur og hafa sungið með flestum öðrum karlakórum sem eitthvað kveður að. Nú síðast í vetur nokkra tónleika með Karlakór Reykjavíkur svo að það má segja að þeir hafi verið allvel undirbúnir. Fyrirvarinn sem við höfðum var ekki alveg jafnlangur. Sæluvikan stóð dagana 25. – 2. maí og endaði sem fyrr segir með stórtónleikum í Miðgarði í Varmahlíð. Auk Karlakóranna Heimis og Hreppamanna komu þar fram Rökkurkórinn sem […] - [Reiðtúr haust 2009](https://kkh.is/2011/11/07/reidhtur-haust-2009/): Karlakórsreiðtúrinn 2009 Skemmtinefnd kórsins fann ekki góðan tíma fyrir útreiðartúr vorið 2009 eins og venja er til og um tima leit út fyrir að ekkert yrði farið í reiðtúr þetta árið. Nefndin skynjaði þó vaxandi pressu á að sleppa þessu ekki alveg og ákveðið var að stefna á 19. september. Vætusamt var búið að vera í nokkurn tíma áður en sú dagsetning rann upp með logni og blíðu. Ákveðið var að hittast við nýju reiðhöllina í Torfdal á Flúðum og skyldi riðið til Einars Loga í Miðfelli eftir svokallaðri „slóð fiðrildanna“ í Götulandi. Þar var áð í góða stund og […] - [Að lokinni tónleikaröðinni "Liszt í 200 ár"](https://kkh.is/2011/11/01/adh-lokinni-tonleikaroedhinni-qliszt-i-200-arq/): Síðustu tónleikar kórsins í tónleikaröðinni „Liszt í 200 ár“ voru haldnir í Selfosskirkju 2. nóvember fyrir fullu húsi. Þetta verkefni var afar skemmtilegt og krefjandi. Lögin sem kórinn flutti á tónleikunum höfðu ekki verið flutt áður hér á landi í það minnsta ekki með íslenskum textum. Heiðurinn af textagerðinni og þýðingunum á Gylfi Þorkelsson félagi í kórnum. Lög Franz Liszt voru óvenjuleg á sínum tíma og skera sig úr jafnvel enn þann dag í dag fyrir það að laglínan er síbreytileg og þannig eins og rússibani fyrir áheyrendur að hlusta á því það var alltaf eitthvað óvænt framundan og spennandi. […] - [Bilbao 2008](https://kkh.is/2011/10/21/bilbao/): Ferðasaga Karlakór Hreppamanna til Bilbao á Spáni 30. október – 2. nóvember 2008   Fimmtudaginn 30. október lögðu 26 karlakórsmeðlimir ásamt mökum af stað til Bilbao á Spáni. Þau hjón, Edit Molnár stjórnandi kórsins og Miklós Dalmay píanóleikara voru einnig með í för. Þessi rúmlega 50 manna hópur var smátt og smátt að tínast inn í flugvallabygginguna í Keflavík eftir hádegi þennan sólbjarta dag. Eins og venja er var fólk á röltinu um bygginguna, ýmist að skoða og/eða versla sitt lítið af hverju. Margir fengu sér að borða og oft mátti heyra hlátrasköll í hópnum því spenningur var í mannskapnum […] - [Ný heimasíða KKH](https://kkh.is/2011/10/19/ny-heimasidha-kkh/): Hér er að fæðast ný heimasíða Karlakórs Hreppamanna - [Liszt í 200 ár](https://kkh.is/2011/10/07/liszt-i-200-ar/): Liszt í 200 ár Þá er kórstarfið hafið að fullum krafti og æft grimmt fyrir fyrirhugaða tónleikaröð kórsins sem verður um mánaðamótin okt. – nóv. (sjá auglýsingu ). Tónleikarnireru auglýstir undir fyrirsögninni „Liszt í 200 ár“ þar sem þeir eru tileinkaðir ungverska tónskáldinu Franz Liszt sem var óumdeilt einn fremsti píanóleikari sinnar kynslóðar og - [Af blönduðum karlakórum og öðrum.](https://kkh.is/2011/05/08/af-bloendueum-karlakorum-og-oeerum/): Þá er skemmtilegum söngvetri lokið og fjórtándu vortónleikar kórsins að baki. Kórinn tók endasprettinn með stæl og hélt flotta tónleika í Félagsheimilinu en einnig í Guðríðarkirkju í Grafarholti. Á prógramminu voru hvoru tveggja klassísk karlakórslög og melódísk kórverk eftir meistara Franz Liszt. Lögin eftir Liszt voru sýnishorn úr söngskrá næsta vetrar þar sem kórinn mun strax næsta haust byrja vetrarstarfið með tónleikaröð á Selfossi, í Reykjavík og á Akureyri. Lesa nánar …   - [Vortónleikar 2011](https://kkh.is/2011/04/07/vortonleikar-2011/):   Aðgangseyrir kr. 2500,-. Allir hjartanlega velkomnir. - [Tónleikum aflýst](https://kkh.is/2011/02/17/tonleikum-aflyst/): Fyrirhuguðum tónleikum Karlakórs Hreppamanna, Vörðukórsins og Söngsveitar Hveragerðis, er halda átti þann 19. febrúar í Félagsheimili Hrunamanna er aflýst. Stjórn KH - [Tónleikar 19. febrúar](https://kkh.is/2011/01/20/tonleikar-19-februar/): Framundan eru tónleikar þann 19. febrúar. Þessir febrúartónleikar eru orðnir fastur dagskrárliður í vetrarstarfi kórsins og hafa þá jafnan einn eða fleiri kórar sungið með okkur. Að þessu sinni munu heiðra okkur með þátttöku sinni Vörðukórinn og Söngsveit Hveragerðis. Þannig að það er von á fjölbreyttri og skemmtilegri dagskrá. Þegar nær dregur mun þetta verða auglýst nánar.   - [Æfingadagur](https://kkh.is/2011/01/17/aefingadagur/): Æfingabúðir og Uppsalir Ákveðið var að fara í æfingabúðir laugardaginn 15. janúar á Hvolsvöll til að starta kórnum rækilega á nýju ári. Var boðið uppá rútuferð þangað sem margir þáðu. Fyrirhugað var að æfa á Hótel Hvolsvelli fram eftir degi og skreppa svo í heimsókn til okkar ástsæla, fyrrverandi sveitarstjóra, á sveitasetur hans að Uppsölum í Fljótshlíð. Ísólfur Gylfi hefur að sjálfsögðu skyldum að gegna í kórnum þó að hann sé nú kominn í hóp félaga í orlofi. Ísólfur er séður í viðskiptum og náði að lokka okkur á Sögusafnið áður en við komumst á Hótelið og áður en við […] - [Hátíð í bæ](https://kkh.is/2010/12/05/hatie-i-bae/): Jólatónleikarnir „Hátíð í bæ“ fara fram í Iðu, íþróttahúsi FSu á Selfossi,  miðvikudagskvöldið 8. desember og hefjast kl. 20:00. Karlakór Suðurlands (Karlakór Hreppamanna, Karlakór Rangæinga og Karlakór Selfoss) ásamt fjölda góðra tónlistarmanna munu koma fram á tónleikunum. Hér má sjá nánari upplýsingar. - [Gorhátíð](https://kkh.is/2010/11/11/gorhatie/): Karlakvöld 2010 Þann 19. nóvember heldur annar tenór hið árlega karlakvöld Karlakórs Hreppamanna í Félagsheimilinu Flúðum. Borðhald hefst kl. 20:30 húsið opnar kl. 19:30. Aðgangseyrir kr. 3.500 - [Kötlukórinn á veraldarvefnum](https://kkh.is/2010/10/26/koetlukorinn-a-veraldarvefnum/):   Á YouTube má finna lagið Ár vas alda sem tekið var upp á Kötlumótinu, stjórnandi Árni Harðarson. Þetta er íslenskt þjóðlag í útsetningu Þórarins Jónssonar.Hér má sjá myndbandið.   - [Góðar kveðjur](https://kkh.is/2010/10/22/godhar-kvedhjur/):   Karlakórnum hefur borist margar góðar og skemmtilegar kveðjur eftir Kötlumótið sem við þökkum hér með kærlega fyrir. Hér eru nokkrar kveðjur í bundnu máli sem okkur langar að deila með ykkur. Karlakórinn Stefnir:Stefnisliðið ljómar enn,lét þar vaða á súðum.Heill sé ykkur, Hreppamenn,höfðingjar á Flúðum.(Höfundur:           ) Drengjakór Hafnarfjarðar:Þandir stríðu strengirnirstafaði hætta að rúðum.Dásama enn Drengirnirdaginn þann á Flúðum(Höfundur:            ) Karlakór Reykjavíkur:Hreppamanna heimboðinheill og vinskap binda.Höfðingsskapur háborinn,hreint til fyrirmynda.(Höfundur: Grétar Hallur) Karlakór Kópavogs: Okkur körlum alúð mætti,undirbúningsvinna af dug.Í öllum viðurgjörning gætti,glæsileik af stórum hug. Samkennd okkur karla kættiá Kötlumóti sei, sei, sei,meira segja af gleði grætti,gumar þó að gráti ei. Hrepptum […] - [Að loknu Kötlumóti](https://kkh.is/2010/10/18/adh-loknu-koetlumoti/):   Hið magnaða stef úr Völuspá „vasa sandur né sær“ hljómar enn í kolli okkar Hreppamanna og efalaust í hjá fleirum er komu að hlusta á Kötlukórinn mikla í Límtréshöllinni á laugardaginn var. Sexhundruð manna karlakór sem ekkert dró af sér hlýtur að vera þeim er þangað komu eftirminnilegur.                                                                                                                                                               Nú þegar þessu mikla kóramóti er lokið, sennilega því stærsta sem haldið hefur verið, er okkur í Karlakór Hreppamanna efst í huga þakklæti til allra þeirra er gerðu þetta mögulegt. Stjórn Límtrés að lána okkur húsnæðið, Límtréshöllina, sveitastjórn að lána skólann, leikskólann og íþróttahúsið o.s.frv.   Allir sem leitað var til voru boðnir […] - [Kötlumót 2010](https://kkh.is/2010/10/04/koetlumot-2010/): Laugardaginn 16. október verður haldið söngmót sunnlenskra karlakóra á Flúðum. Í ár er Kötlumótið í umsjá Karlakórs Hreppamanna en Katla er Samband sunnlenskra karlakóra. Á mótinu koma saman 15 íslenskir karlakórar, víðsvegar af landinu ásamt einum kór frá Finnlandi. Setningarathöfnin hefst kl. 13:30 í Límtréshöllinni en síðan verður hver kór með sína tónleika. Söngur karlakóranna fer fram í Félagsheimilinu og í Límtréshöllinni og hefjast tónleikarnir kl. 14:30. Strætó mun ganga á 15 mínútna fresti milli Límtréshallarinnar og Félagsheimilisins svo að gestir hafi tök á að hlusta á þá kóra sem þeir óska. Í Límtréshöllinni syngja eftirtaldir kórar: Kl. 14:30 Karlakór Selfoss […] - [Reiðtúrinn 2010](https://kkh.is/2010/09/28/reieturinn-2010/): Þeir fóru á mis við frábæra skemmtun í fallegu veðri sem komust ekki í reiðtúr karlakórsins þann 17. september s.l. Hópurinn sem lagði af stað í sól og blíðu frá Syðra-Langholti var … Nánar - [Sungið á Þingvöllum](https://kkh.is/2010/09/02/sungie-a-tingvoellum/):   Formaður Skógræktarfélags Íslands fór þess á leit við formann kórsins á vormánuðum að við myndum syngja á Þingvöllum í tilefni 80. ára afmælis félagsins þann 29. ágúst. Það var auðsótt mál ef næðist í nægilega marga söngmenn þar sem formlegar æfingar væru ekki hafnar á þessum tíma. Gerð var liðskönnun með því að kalla á æfingu fimmtudaginn 26. ágúst, þá var ljóst að þetta gæti gengið og æfð upp nokkur lög sem við kunnum vel. Mættu menn allvel stemmdir og uppábúnir í Furulund á Þingvöllum þar sem formleg skógrækt hófst svo að segja á Íslandi, var þar samankominn allnokkur […] - [Vel heppnuð ferð í Skagafjörðinn](https://kkh.is/2010/05/11/vel-heppnue-fere-i-skagafjoereinn/): Við viljum koma á framfæri kæru þakklæti til Skagfirðinga fyrir höfðinglegar móttökur. Sérstakar þakkir fær Karlakórinn Heimir fyrir að bjóða okkur að taka þátt í Sæluvikutónleikunum í Miðgarði. Hér má lesa ferðasöguna. - [Að loknum vortónleikum](https://kkh.is/2010/04/27/ae-loknum-vortonleikum/): Vortónleikar Karlakórsins tókust í alla staði vel. Sungið var í Selfosskirkju þriðjudagskvöldið 13. apríl fyrir fullu húsi og síðan á Flúðum laugardagskvöldið 17. apríl. Þar fylltu tónleikagestir félagsheimili okkar Hreppamanna og ekki var annað að heyra en að gestir skemmtu sér vel svo ekki sé talað um þegar einsöngvarinn steig á svið, stórtenórinn Jóhann Friðgeir. Söng hann nokkur lög með kórnum og einnig söng hann einn við undirleik Miklósar. Erum við karlakórsmenn afar ánægðir með að hafa fengið þennan frábæra einsöngvara til að syngja með okkur á þessum tónleikum. Næsta verkefni kórsins, sem óhætt er að segja að við félagarnir […] - [Vortónleikar 2010](https://kkh.is/2010/04/08/vortonleikar-2010/): Karlakór Hreppamanna heldur tónleika í Selfosskirkju þriðjudaginn 13. apríl og í Félagsheimili Hrunamanna á Flúðum laugardaginn 17. apríl. Tónleikarnir hefjast kl. 20:30. Einsöngvari verður Jóhann Friðgeir Valdimarsson stórtenór. Sjá nánar auglýsingu. Aðgangseyrir kr. 2.500,-. Allir hjartanlega velkomnir.   - [Sönghátíð 20. febrúar](https://kkh.is/2010/02/26/soenghatie-20-februar/): Sönghátíð Karlakórs Hreppamanna 20. febr. 2010, þar sem KKH bauð til sín tveimur kórum, kvennakórnum Freyjum úr Borgarfirði og Gömlum Fóstbræðrum úr Rvík. Fóstbræður gistu á Hótel Flúðum, en Freyjurnar fóru heim eftir kvöldið. Hátíðin hófst á því að öllum kórmeðlimum var boðið í súpu og brauð, að sjálfsögðu var það sveppasúpa með ekta Flúðasveppum. Tónleikarnir hófust kl. 20:30 og Freyjurnar hófu sönginn og sungu undir stjórn Zsuzsanna Budai. Síðan stigu Fóstbræður á svið og sungu undir stjórn Árna Harðarsonar. Þá var hlé og eftir það fóru KKH á svið og sungu undir stjórn Edit Molnár við pínaóleik Miklósar Dalmay. Þá […] - [Söngskemmtun](https://kkh.is/2010/02/17/soengskemmtun/): Þrír kórar halda tónleika í félagsheimilinu á Flúðum laugardaginn 20. febrúar kl. 20:30. Sjá nánar auglýsingu hér að neðan. Aðgangseyrir kr. 2.000,-. Allir hjartanlega velkomnir. - [Söngskemmtun á Flúðum](https://kkh.is/2010/01/24/soengskemmtun-a-flueum/): Laugardaginn 20. febrúar mun Karlakór Hreppamanna halda söngskemmtun á Flúðum. Gestir kvöldsins verða karlakór eldri Fóstbræðra og Kvennakórinn Freyjurnar úr Borgarfirði. Nánar auglýst síðar. - [Jólaæfing](https://kkh.is/2009/12/11/jolaaefing/): Síðasta æfing fyrir jól verður þriðjudaginn 15. desember. Takið eiginkonurnar með og eigum saman notalega kvöldstund. Létt jólastemmning, jólalög, jólaglögg og piparkökur. Jólakveðja, Stjórnin   ## Pages - [Kórstarfið](https://kkh.is/korstarfid/) - [Karlakór Hreppamanna](https://kkh.is/) - [Ferðalög kórsins](https://kkh.is/ferdalog-korsins/) - [Merki kórsins](https://kkh.is/merki-korsins/) - [Reglur kórsins](https://kkh.is/reglur-korsins/): Karlakór Hreppamanna Félagslög 1. grein 1.1. Félagið heitir Karlakór Hreppamanna, kt. 620905-1510. 1.2. Heimilisfang og varnarþing er í Félagsheimili Hrunamanna að Flúðum, 845 Flúðum. 1.3. Eingöngu er um áhugamannafélag að ræða, sem ekki mun stunda neina fjárhagslega starfsemi umfram það sem eðlilegt og nauðsynlegt er starfsemi kórsins. 1.4. Markmið félagsins er: a.Að æfa og halda uppi karlakórssöng og efla framgang hans í landinu. b.Efla og auðga sönglíf og menningu samfélagsins. c. Stuðla að auknum kynnum og samstarfi við aðra kóra. 1.5. Markmiði þessu skal félagið m.a. ná með því að halda árlega samsöngva og efna til söngferða innan- sem utanlands. […] - [Skýrslur stjórnar](https://kkh.is/skyrslur-stjornar/): Skýrsla formanns 2018 Skýrsla formanns 2017 Skýrsla formanns 2016 Skýrsla formanns 2015 Skýrsla formanns 2014 Skýrsla formanns 2013 Skýrsla formanns 2012 Skýrsla formanns 2011 Skýrsla formanns 2010 Skýrsla formanns 2009 - [Stjórn og nefndir](https://kkh.is/stjorn-og-nefndir/): Netfang: kkh@kkh.is Stjórn 2025-2026 Formaður:                 Loftur S. Magnússon / 896-0812 / loftursm@gmail.comGjaldkeri:                   Páll Kristján Svansson / 861-3834 / pks@simnet.is                       Meðstjórnandi:         Gylfi Þorkelsson / 895-8400 / 482-3412 / gylfithorkelsson@gmail.com, Meðstjórnandi:         Egill Jónasson / 898-8927 / vihjar@simnet.isMeðstjórnandi:         Sigurður Snær Sveinsson / 856-4942 / siggi.tholl@gmail.com Varastjórn Bjarni Hjörleifsson / 861-5596 / bjarnihj@gmail.comHjalti Gunnarsson / 848-0969/ info@geysirhestar.comHelgi Ingimarsson / 867-1272 / helgihilux@gmail.comErlingur Bjarnason / 898-6198 / ellibjarna@gmail.com Nefndir 2025-2026 Pallanefnd: Einar Ásgeir Sæmundsen, formaðurKarl Jóhann BriddeKristján Hrafn ArasonSkarphéðinn Rúnar PéturssonSnorri Freyr Jóhannesson Erindisbréf Pallanefndar:1.  Sér […] - [Félagatal](https://kkh.is/felagatal/): Félagatal 2025-2026 Nafn Sími Netfang 1. bassi – 12 Einar Ásgeir Sæmundsen 891-6764 einar.a.e.saemundsen@gmail.com Eiríkur Ágústsson 891-6754 silfurber@simnet.is Erlingur Bjarnason 898-6198 ellibjarna@gmail.com Friðgeir Stefánsson 847-8165 holar@eyjar.is Gunnlaugur Magnússon 863-5201 midfell1@simnet.is Gylfi Þorkelsson 895-8400 gylfithorkelsson@gmail.com Jómundur Atli Bjarnason jomunduratlibjarnason@gmail.com Karl Jóhann Bridde 660-7860 kallibridde@simnet.is Karl Hallgrímsson 867-6388 karlinn@simnet.is Ólafur Ólafsson 895-2284 oliola1950@gmail.com Sigurjón Sigurðsson 893-5212 kotlaugar@gmail.com Snorri Jóhannesson 618-6055 fludaraf@gmail.com 2. bassi – 11 Aðalsteinn Þorgeirsson 898-1591 hrafnkelsstadir@simnet.is Bjarni Jónasson 894-9758 bkongur@simnet.is Grímur Guðmundsson 896-6683 grimurgud@gmail.com Hjalti Gunnarsson 848-0969 info@geysirhestar.com Loftur Snæfells Magnússon 896-0812 loftursm@gmail.com Ólafur Kristinn Bjarnason 893-3987 olafurkristinnbjarnason@gmail.com Páll Kristján Svansson 861-3834 pks@simnet.is Sigmundur Jóhannesson 894-8974 simmisydra@gmail.com Sigurður Björgvinsson […] - [Um kórinn](https://kkh.is/um-korinn/): Heiti: Karlakór Hreppamanna Stofndagur: 1. apríl 1997 Heimilisfang: Félagsheimili Hrunamanna, 845 Flúðum Kennitala: 620905-1510. Reikningsnr.: 0325-26-009966 Netfang: kkh@kkh.is Forsvarsm.: Loftur S. Magnússon Sími: 896-0812 Netfang: loftursm@gmail.com - [Dagskrá kórsins 2025-2026](https://kkh.is/dagskra-korsins/): Dagskrá kórsins er ekki enn fullmótuð og birt með fyrirvara um breytingar. Tónleikar og aðrir viðburðir 16. sept. ’25: Fyrsta æfing starfsársins 3.-4. okt. ’25: Kóramót í Kópavogi í boði Karlakórs Kópavogs 21. okt. ’25: Aðalfundur Karlakórs Hreppamanna 5. des. ’25: Jólaskemmtun/hlaðborð. Hótel Flúðir. 6. jan. ’26: Fyrsta æfing á nýju ári 14. feb. ’26: Hagyrðingakvöld 21. feb. ’26: Langur æfingadagur 7. mars ’26: Langur æfingadagur Vortónleikar 2026 Reykjavík:Þriðjudaginn 14. apríl ’26, kl. 20:00 í Guðríðarkirkju. Selfoss:Föstudaginn 17. apríl ’26, kl. 20:00 í Selfosskirkju. Skálholt:Laugardaginn 18. apríl ’26, kl. 20:00 í Skálholtskirkju. - [Undirleikari](https://kkh.is/pianoleikari/): SIGURÐUR HELGI ODDSON Sigurður Helgi lauk framhaldsprófi í píanóleik frá Tónlistarskólanum áAkureyri árið 2004 og BMus gráðu í kvikmyndatónlist, djasspíanóleik oghljómsveitarstjórn frá Berklee College of Music í Boston árið 2011.Hann hefur starfað jöfnum höndum sem klassískur og rytmískur píanóleikariásamt því að stjórna kórum, kenna, útsetja og semja tónlist. Hann starfaðium tíma sem píanókennari og meðleikari við Tónlistardeild ListaskólaMosfellsbæjar en frá því í febrúar 2018 hefur hann gegnt fullri stöðu sempíanóleikari og kennari við Söngskólann í Reykjavík. Í gegnum tíðina hefurhann komið að ýmsum óperu- og söngleikjauppfærslum hjá áhuga- ogatvinnuleikfélögum, nú síðast sem tónlistarstjóri í Ástardrykknum eftirDonizetti í uppfærslu Sviðslistahópsins Óðs […] - [Stjórnandi](https://kkh.is/stjornandi/) - [English](https://kkh.is/english/):     The Icelandic Male Choir Karlakór Hreppamanna, is one of many male choirs in Iceland, where there is a strong tradition of male choirs. Hreppamanna Male Choir is based in the countryside in the south of Iceland, where many of the the great wonders of Icelandic nature can be found. To name a few, one could mention Geysir, the geothermal hot spring area, Gullfoss, one of the most beautiful waterfalls, Hekla, one of the best known volcanoes in the world, and Langjökull, the second largest glacier in Europe. With the power of this nature surrounding, Hreppamanna Male Choir was […] - [Söngárið 2006-2007](https://kkh.is/stofnsaga/soengaridh-2006-2007/): Á tíunda starfsári kórsins var fjölbreytnin í fyrirrúmi. Laugardaginn 4. nóvember héldu Árnesingakórinn í Reykjavík, Karlakór Hreppamanna og Vörðukórinn tónleika í Félagsheimilinu á Flúðum. Karlakvöld Karlakórs Hreppamanna var haldið stuttu síðar eða 17. nóvember af öðrum tenór. Þessi árlegi viðburður var að festast í sessi sem hefð innan kórsins og var þetta í þriðja skiptið sem karlakvöld var haldið. Kvöldið var afar karlmannlegt þar sem fjöldi karla komu saman og þáðu karlmannlegar veitingar. Á boðstólnum var saltað hrossakjöt og grófhökkuð hrossabjúgu í aðalrétt. Í forrétt var hrátt hrefnukjöt og viðeigandi vökvi með til sótthreinsunar. Skemmtikraftur kvöldsins var Björgvin Franz Gíslason […] - [Söngárið 2005-2006](https://kkh.is/stofnsaga/soengaridh-2005-2006/): Mikil tilhlökkun var fyrir þessum starfsvetri þar sem hann hófst með skemmtilegu ferðalagi til Búdapest frá 13.-17. október. Skemmtu kórfélagar og makar sér vel þar og blönduðu saman skemmtun, söng, fræðslu og menningu. Edit og Miklós voru fararstjórar þar sem þau voru á heimavelli hvað varðar stefnur og strauma í tónlistarmenningu og margt fleira. Ferðinni verður gerð betri skil í ferðasögu aftar í ritinu. Landsmót karlakóra var haldið í Hafnarfirði 29. október. Að þessu sinni voru það Karlakórinn Þrestir sem voru gestgjafar og leystu þeir það verkefni vel. Kórarnir sem tóku þátt voru 19 og sungið var á þremur stöðum […] - [Söngárið 2004-2005](https://kkh.is/stofnsaga/soengaridh-2004-2005/): Starfsárið hófst með æfingum fyrir stórtónleika sem halda átti laugardaginn 9. október á Stokkseyri. Tónleikarnir voru haldnir í Menningarverstöðinni Hólmaröst þar sem níu kórar tóku þátt. Kórarnir vor Karlakór Selfoss, Karlakór Kjalnesinga, Karlakór Keflavíkur, Karakórinn Þrestir, Karlakór Reykjavíkur, Karlakór Rangæinga, Lögreglukór Reykjavíkur, Karlakórinn Fóstbræður og síðast enn ekki síst Karlakór Hreppamanna. Kynnir samkomunnar var Valdimar Bragason og sameinuðu kórarnir allar raddir sínar í nokkrum lögum undir lok tónleika meðal annars með lagi Páls Ísólfssonar, Brennið þið vitar. Karlakvöld 2. bassa var haldið í nóvember. Félagar í 2. bassa fengu til liðs við sig leikkonununna Helgu Brögu Jónsdóttur sem hélt körlunum […] - [Söngárið 2003-2004](https://kkh.is/stofnsaga/soengaridh-2003-2004/): Þetta söngár hófst með stóru samstarfsverkefni kröftugra karlakóra. Stórtónleikar voru haldnir í íþróttahúsinu á Selfossi laugardaginn 11. október þar sem fram komu sjö kórar og sungu þrjú lög hver auk þess sem kórarnir sungu saman nokkur lög undir lok tónleikanna. Þessi kórar voru Karlakórinn Jökull, Karlakór Rangæinga, Karlakór Hreppamanna, Karlakórinn Fóstbræður, Lögreglukórinn, Karlakór Keflavíkur og Karlakór Selfoss. Samkór Selfoss hélt upp á 30 ára afmælið sitt í október. Gestakórar Samkórsins voru Karlakór Hreppamanna og Karlakórinn Þrestir. Bergþór Pálsson óperusöngvari tók einnig þátt í afmælishaldinu með einstökum söng sínum. Karlakór Hreppamanna söng einnig á söngskemmtun í Árnesi í byrjun desember ásamt […] - [Söngárið 2002-2003](https://kkh.is/stofnsaga/soengaridh-2002-2003/): Sveitarstjórn Hrunamannahrepps hélt Lofti Þorsteinssyni bónda og fyrrum oddvita í Haukholtum kveðjuhóf í Félagsheimilinu á Flúðum föstudagskvöldið 11. október. Loftur var að láta af störfum sem oddviti og vottaði Karlakór Hreppamanna honum þann heiður að taka nokkur lög í hófinu. Samkór Selfoss hélt ungverskt menningarkvöld 14. febrúar á Borg í Grímsnesi. Þetta kom til eftir að kórinn hafði farið til Ungverjalands með Edit árið áður en hún stjórnaði einnig Samkórnum. Karlakór Hreppamanna fékk að taka þátt í menningarkvöldinu og tók þar nokkur lög. Afmælismánuður kórsins var viðburðaríkur eins og oft áður. Þriðjudaginn 15. apríl héldu kórfélagar til Reykjavíkur til að […] - [Söngárið 2001-2002](https://kkh.is/stofnsaga/soengaridh-2001-2002/):     Á fimmta starfsvetri kórsins mættu kórfélagar vaskir til leiks. Laganna verðir úr Lögreglukór Reykjavíkur héldu tónleika með Karlakór Hreppamanna laugardaginn 24. nóvember í Aratungu. Kynnir tónleikanna var Valgarður Jónsson skólastjóri á Flúðum sem skaut inn gamanvísum milli söngatriða, en að lokum sungu kórarnir saman tvö lög.[1] Aðventuhátíð Hrunaprestakalls var haldin á Flúðum 8. desember og söng kórinn þar ásamt Yngribarnakór Flúðaskóla, Skólakór Flúðaskóla, Kirkjukór Hrunaprestakalls auk samspils Jóhanns I. Stefánssonar og Miklós Dalmay á trompet og píanó. Edit stjórnaði hátíðinni og börn úr kirkjuskólanum fluttu jólaguðsspjallið eins og þeim einum var lagið. Æfingabúðir voru m.a. í Aratungu, Laugarvatni […] - [Söngárið 1999-2000](https://kkh.is/stofnsaga/soengaridh-1999-2000/): Aldarmótaveturinn fór skemmtilega ef stað með söng á Söngkvöldi í Aratungu með Karlakór Kjalnesinga þann 27. nóvember. Kórinn tók að sér gestgjafahlutverkið að þessu sinni en árið áður höfðu Kjalnesingar tekið á móti Karlakór Hreppamanna á sínum heimaslóðum. Á Konukvöldi Sambands sunnlenskra kvenna, þann 14. desember, var markmiðið að skemmta kvenþjóðinni og voru þar tekin nokkur lög við góðar undirtektir. Vígsluhátíð mikil var haldin í hestamiðstöð Íshesta í marsmánuði. Karlakórinn var fengin til að taka þar nokkur lög fyrir gesti hátíðarinnar sem voru m.a. forseti Íslands, ráðherrar ofl. Hreinn Þorkelsson setti saman tækifæristexta við eitt kórlag sem var tileinkað Einari […] - [Söngárið 2000-2001](https://kkh.is/stofnsaga/soengaridh-2000-2001/): Heldur fór kórstarfið seinna í gang þennan vetur en árið áður, eða þann 3. október. Æfingadagar voru að venju með reglulegu millibili á árinu og var meðal annars æft í Félagslundi, Brattholti og Aratungu. Fyrstu tónleikar á þessum söngvetri voru svo nefndir Nóvembertónleikar sem kórinn hélt ásamt Karlakór Rangæinga í Félagsheimilinu á Flúðum fimmtudaginn 23. nóvember. Tónleikarnir enduðu að vanda með samsöng kóranna og að þessu sinni voru það lögin Fjallið Skjaldbreiður og Þú álfu vorrar yngsta land. Fyrsti sunnudagur aðventu, 3. desember, var haldinn hátíðlegur með aðventuhátíð Hrunaprestakalls. Þar komu fram fjórir kórar, Barnakór Flúðaskóla, Yngribarnakór Flúðaskóla, Kirkjukór Hrunaprestakalls […] - [Söngárið 1998-1999](https://kkh.is/stofnsaga/soengaridh-1998-1999/): Að loknum sumarfríum hófst starfsárið með æfingu þriðjudagskvöldið 22. september. Búningur Karlakórs Hreppamanna var saumaður þennan vetur. Ákveðið var að hafa hann svipaðan og íslenska þjóðbúninginn að undanskildum jakkanum. Laugardaginn 14. nóvember var blásið til tónleika í Félagsheimilinu í Árnesi ásamt Karlakórnum Söngbræðrum úr Borgarfirði. Í jólamánuðinum var farið í heimsókn til Karlakórs Kjalnesinga og Mosfellskórsins og sungið á tónleikum með þeim í Fólkvangi 4. desember. Á nýju ári var haldinn æfingardagur á Sólheimum í Grímsnesi, 16. janúar. Sungið var fyrir heimamann að loknum æfingardegi í þakklætisskyni fyrir aðstöðuna. Lófaklappið var mikið og auðséð að þakklæti heimamanna var ekki minna […] - [Söngárið 1997- 1998](https://kkh.is/stofnsaga/soengaridh-1997-1998/): Atburðir haustsins 1997 skiptu miklu fyrir framtíð kórsins. Kórfélögum fjölgaði og nýir söngmenn gengu til liðs við þá er fyrir voru í kórnum frá liðnum vetri og staðfestu um leið áhuga á kórastarfinu sem lá í lausu lofti frá því vorið áður. Gunnlaugur Magnússon gekk rösklega til verks sem fyrsti formaður kórsins og meðal annars var á þessu hausti ákveðið með nafngift. Í framhaldi af því fékk kórinn nafnið Karlakór Hreppamanna. Fyrir jólin var farið í skemmtiferð til Víkur í Mýrdal þar sem kórinn söng í Víkurkirkju ásamt sönghópnum Átta í lagi. Í Vík var farið á jólahlaðborð og skemmtu […] - [Stofnsaga kórsins](https://kkh.is/stofnsaga/):   Stofnsaga   Karlakór Hreppamanna fagnar á þessu ári 2007 tíu ára starfsafmæli sínu. Það er í raun undir hverjum félagsskap komið hvernig starfið þróast og má tengja það beint til þeirra sem í honum taka þátt og skapa samstarfið. Það má á vissan hátt segja að stofnun Karlakórs Hreppamanna hafi verið hálfgert ævintýri og hafi samstarfið gengið framar björtustu vonum, svo að segja á hverju starfsári. Það var síðla á góu 1997 að Edit Molnár ámálgaði það við nokkra karla í kirkjukórnum, hvort grundvöllur væri fyrir því að stofna karlakór á Flúðum. Þeir tóku því ekki illa og ekki […] - [Vorið 1997](https://kkh.is/stofnsaga/voridh-1997/):   Það var haustið 1995 að tónlistarfólk ættað frá Ungverjalandi, þau Edit Molnár og eiginmaður hennar Miklós Dalmay ásamt þremur börnum fluttu í Hrunamannahrepp. Edit sérmenntaður kórstjóri og Miklós konsertpíanisti af bestu gerð. Þau höfðu ráðið sig á Skagaströnd veturinn áður (1994-1995) en hann reyndist sérlega snjóþungur og ákváðu þau því að færa sig um set. Edit sá auglýst, í Morgunblaðinu, eftir organista og kirkjukórsstjóra á Flúðum. Þetta var 100% staða, sem organisti, kórstjóri, kennari í grunnskóla og tónlistarskóla. Hún sótti um og var ráðin. Það var svo í lok mars 1997, að lokinni kirkjukórsæfingu að nokkrir kórfélagar komu saman […] [comment]: # (Generated by Hostinger Tools Plugin)